— GESTAPÓ —
InnleggEnn er kveðist á - Andropov - 19/7/04 23:02

Hljóðum skrefum læðast létt
lögfræðingar knáir
Stefna! kæra! staflast þétt
Stefsreikningar háir

Ísbirnir hér áður fyrr,
átu mann og annan.
Tugginn hálfur, hann lá kyrr
Halli er ég fann 'ann

Halli vænsta hann var skinn,
húð hans kunnu' að meta

Allan daginn út og inn
Ávallt fullur er ég
Heim til mín frá hvar ég finn
hillur dauðar ber ég.

Að utan kem eg alltaf hreint
með afar fagrar flöskur.

Ég vil benda mönnum á að þessi fyrripart ...

Fyrr þó skal á konur kíkja
kátar hnátur saman skríkja
Allar fyrir einni víkja
Aldrei mun ég hana svíkja

Elti stelpur endalaust
aldrei á því þreytist.

Himnar rofna hellist nú
hingað vatn í straumum
Guð! Hví opnar gáttir þú,
gleymir mönnum aumum?

Heyrt hef tóninn hreina víst
hljóma oft um nætur

Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: