Er þetta endir vitrænna samtala?
Það hefur ekki farið framhjá neinum hvers konar lýður hefur tekið sér bólfestu hérna. Ekki nóg með að gelgjur sæki að okkur úr öllum áttum, heldur hefur T**y eftirherman snúið aftur. Eitthvað verður að gera í málinu.
Við getum ekki bannað fólkið, það leysir ekkert. Tinni vill meina að það fari ef við tölum ekki við það. Ég er á því að það fari bara að tala við hvert annað, nú eða sjálft sig. Hvað er þá til bragðs að taka? Nú veit maður ekki.
Er þetta heimsendir?