— GESTAPÓ —
SlipknotFan13
Nýgræðingur.
Sálmur - 2/11/03
Nokkrar hræðilegar vísur.

Ég hef aldrei talist til landsins bestu skálda. Jafnvel ekki einu sinni talist til skálds. Líklega vegna þess að ég geri lítið af því að yrkja á ylhýruna. En hér með stíg ég mín fyrstu skref og reyni að tækla ferskeytluna.

I
Ósköp erfitt þykir að yrkja,
en auðvitað teljum vér það öndina styrkja
og mun hér brátt rísa vísnabálkskirkja,
sem bera mun vott um eitthvað.. annað ..en ... ráð... tyrkja...

ah. Fyrsta vísan komin undir, nú er sú næsta.

II
Aðra vísu býsnast við,
Slipknotfaninn 13,
Gleymdi hann þeim gamla sið,
að merja inn stuðlum, höfuðstöfum og rími.

III
Drekkum te
drengir
Það er gott ef
svengir.

IV
Vind ég nú mínu kvæði í kross
og kný fram á það hnút,
Því aumt það þykir víst af oss
í burðum saman við Baggalút.

   (3 af 13)  
2/11/03 11:00

Jóakim Aðalönd

Ég veit ekki til þess að ég hafi verið styrktur sérstaklega.

2/11/03 11:01

Feiti Einbúinn

BRAVÓ!!

2/11/03 11:01

hundinginn

Sorp!...

2/11/03 13:00

SlipknotFan13

Pff! Ég gefst samt ekki upp! Bálkur annar mun líta dagsins ljós innan tíðar!

SlipknotFan13:
  • Fæðing hér: 3/1/04 22:22
  • Síðast á ferli: 23/12/22 23:23
  • Innlegg: 1
Eðli:
Æm djöst a normal gæ hú læks Pína Kóladas and getting köht in þe rein...
Fræðasvið:
Númetalískst spjátrungspopp og tíska unglingsstúlkna á ofanverðri 21. öld.
Æviágrip:
Ungur fæddist, ekki látinn enn.