Ég fór að hita upp fyrir helgina þegar vinir mínir komu í heimsókn í gær-kveldi. Varð þetta hin ágætasta söng skemtun, þar til að farið var að henda í okkur drasli úr öllum áttum.
Eftir þessa reinslu tel ég það sýnt að Íslendigar eru fílupúkar klukkan 4 á fimtudags morgnum.
Annars leið dagurinn að mestu viðburða laust nema að lögregla kom og fór að spurja mig um heimilis hagi mína. Þeir báðu mig afsökunar þegar ég var búinn að útskýra hvernig stæði á því að ég væri hér. Það síðasta sem að ég sá til þeirra þá setust þeir upp í bíl og fóru beint í talsöðina.
-Meira á morgun ef að heilsan leyfir.
Hei, hvar er hitt n-ið? Ég stóð í þeirri meiningu að þú værir Röðinn, þ.e. sá sem alltaf þarf að vera fyrstur í röð.