Germaníum, brennisteinn, tantalum og póloníum. Athyglisvert var að ekkert kóbalt greindist. Vísindasamfélagið skelfur.
Jú, Billi, en það er falið í esperanto-heiti Baggalútíu, Baggalutico:
Bór, silfur, gallín, lútetín, titanium, KÓBALT
B-Ag-Ga-Lu-Ti-Co
Minnir mig á þegar ég sá í Menntaskólanum að það var hægt að búa til orðið BaCoN úr efnum í lotukerfinu. Þetta spaug hefur greinilega mjög viðtækt notkunargildi.
Þetta er með merkilegri vísindaniðurstöðum í sögu baggalútíska vísindasamfjelagsins - skál !
En er þetta hugsanlega vísbending um að gera þurfi esperanto að þjóðtungu Baggalútíu ? Eða kannski nægir að í lútínu verði nafn Baggalútíu Baggalutico en eigi Baggalútía.
Þetta var nú glæsileg frammistaða hjá þér og niðurstöður þessa rannsókna eiga eftir að koma að miklu gagni í framtíðinni.
Billi hefur höfuðpaur á herðum sínum.
Hann svo eftir allt fer saman.
-Að yrkja braghent finnst mér gaman.
Stórmerkileg tíðindi og heimsviðburður. Ég sé nóbelsverðlaun í efnafræði stefna hraðbyri hingað...
Snilldar greining hjá þér Hlebbi.
Nógu langan tíma tók að læra Baggalútísku,
að ég kvíð fyrir að þurfa að læra Esperanto,
til að viðhalda Kóbaltinu í Baggalutico
Al Ge R Le Ga Ma Gn Ad
Alúmíum Gelatín Ríbóflavín Lesitín Gabberdín Mandólín Glútein Adrenalín
Já er það ekki Offari. Ég hef heyrt að Gústaf Adolf sé heitur þegar Klám- og kynlífsnóbelinn verður veittur.
Fallbeygist efnasamsetningin? Það myndi gera hana breytilega eftir föllum. Spennandi!
Krossa: þá bætist við joð í þágufalli (I) en brennisteinsinnihaldið tvöfaldast í eignarfalli.
Greinilegt að Gestapóið er hinsvegar ekki til með greini í nefni- eða þolfalli. Í þágufalli fáum við hinsvegar joð, nitur og úran sem hlýtur að teljast stórgott.
Eignarfallið gefur okkur þrefalt magn brennisteins miðað við ógreinda nefnifallið, einn joðskammt auk niturskammts.
Skemmtilegt væri þó ef Gestapó fengi sömu eignarfallsendingu og mörg karlmannsnöfn, það er, til Gestapóar. Þá fengi Gestapó fyrst eðalkeiminn sem margir telja að einkenni það.
Í stað joð- og nitursamsetningu getum við hinsvegar fengið Indíum, sem hlýtur að teljast mun heppilegra!
Það sem aldrey bognar, það brotnar fyrir rest
og býsn hve margir hafa á því flaskað.
Það sem aldrei bognar, það brotnar fyrir rest
og býsn hve margir hafa á því flaskað.
Því fyndist mér það klárlega betra og jafnvel best
ef bannsett draslið mætti vera laskað.
Vel af sér vikið Hlebbi. Mun áskorunin í þessu eigi fólgin i að búa til Kóbalt (27) úr Gestapo með kjarnasundrun. Það mun efalaust leysa úr læðingi krafa þá er bundnir eru í nafla Sannleikans. - og kjötheimurinn mun sjá ljósið, og Sannleikurinn gera þá frjálsa. Lifi Sannleikurinn! (og lifi Hlebbi!)
Ah, Kóbalt er kannski ekki í jöfnunni, en ef þú athugar málið vel, þá binst kóbalt einstaklega auðveldlega við GeSTaPó