Úr þráðunum fléttum við reipi
Mig langar að fagna hér Næturgeltinum og Vísindaakademíunni, sannarlega tímabærum viðbótum við hið Bagglútíska samfélag.
Eftir að hafa litast um á þessum miklu mennta- og menningarreipum undrast ég það mest að ekki skuli hafa verið klippt á borða og skálað opinberlega á þessum tímamótum. Hvar var ríkistjórnin, keisarafjölskyldan, konungsfjölskyldan og forsetinn?
En ég ætlaði ekki að nöldra heldur fagna, SKÁL.
Ég tek reyndar eftir því að Næturgölturinn er horfinn, hann sefur væntanlega á daginn...
ÆI , hirðstjórinn (Vamban) gleymdi alveg að tilkynna okkur um þennan merka atburð. Hann verður tekinn af lífi síðdegis. Til að bæta þetta upp mun keisaraynjan mæta við fyrsta tækifæri á téða staði - með fjárframlög (nýslegna falsmynt) og keisaralegt ákavíti (tréspírítus). LIFIÐ HEIL !