— GESTAPÓ —
Bjargmundur frá Keppum
Óbreyttur gestur.
Dagbók - 4/12/03
Ég er karlmaður!

Það hefur tekist! Núna er ég fermdur að baggalútskum sið. Ég hef lokið manndómsvígslu minni. Gengið á eldi og brennisteini. Sannað að ég er karlmaður!
Á þessum herrans degi, 04.04.´04, á milli klukkan 18:28 til 18:37, náði ég að eiga öll síðustu svörin í öllum flokkum Gestapó! Ég mun fagna því með því að slátra geit og bjóða svo öllum ættingjum mínum heim til mín í pulsur í kvöld.
Þið megið þakka mér með fallegum skilaboðum í tilefni dagsins.

Látum fjörið hefjast!

   (21 af 22)  
4/12/07 13:01

Billi bilaði

Hvernig smökkuðust geitapulsurnar?

Bjargmundur frá Keppum:
  • Fæðing hér: 10/10/03 17:12
  • Síðast á ferli: 9/3/11 02:16
  • Innlegg: 53
Eðli:
Í Heimsveldinu Baggalútíu ríkir stórriddarinn Sir Bjargmundur KBE (Knight of the Baggalutian Empire) yfir nefndarmálum, auk þess sem hann sinnir utanríkismálum í hjáverkum. Hann má oftast finna í hinum gríðarstóra kastala sem hýsir nefndarmálaráðuneytið, þar sem hann stundar hvort tveggja að stjórna gangverki samfélagsins með óteljandi nefndum og að borða kleinur og drekka kaffi á tilgangslausum nefndarfundum til að auka himinhá eftirlaun sín enn frekar.Þó svo að minna beri á ráðherranum dags-daglega á opinberum vettvangi heldur en Konungshjónum, Keisara, Forseta eða Forsætisráðherra Baggalútíu, er það í rauninni hann sem stjórnar á bak við tjöldin með krafti nefnda og skriffinnsku, en með því að styrkja stoðir skrifræðis í Heimsveldinu Baggalútíu hefur ráðherrann komið ár sinni þannig fyrir borð að hann getur talist einn valdamesti maður Ríkisins, þar eð ekkert getur farið fram nema að nefndir og skriffinnska komi þar að. Þess á milli er ráðherrann mikið fyrir sopann og á það til að dansa á borðum uppi við gamla diskóslagara, auk þess sem aðaltómstundagaman hans er að reykja vindla og hlæja stórkarlalega.
Fræðasvið:
Alhliða spekúlasjónir, bjúrókratismi og nefndarsköp.
Æviágrip:
-Bjargmundur Svarfdal fæddist á bænum Keppum við Dýrafjörð. Hann kemur af langri röð embættismanna, skriffinna og ógæfumanna.-Skráður í Skálholtsskóla einungis þriggja vetra gamall. Útskrifaður með 6,5 í leikfimi/glímu, 10 í bókfærslu, 8 í latínu og 7 í mótekju.-Hefur átt marga lærifeður og samstarfsmenn í gegnum tíðina, en þar á meðal eru Guðbrandur biskup, Magnús Stephensen, Bólu-Hjálmar, Herbert Spencer, Max Weber o.fl.