— GESTAPÓ —
dordingull
Heiðursgestur.
Pistlingur - 8/12/04
Sjálfsblekking

Í pistli Vladimirs, Hjálp! Alvarlegt vandamál, og athugasemdum ýmissa við þau skrif, gætir ákveðins misskilnings sem ég tel rétt að leiðrétta.<br /> Og þó það sé ekki gert í löngu máli fannst mér að það yrði full langt sem athugasemd

Það er deginum ljósara að Hr.Vladimir og að því virðist sérstaklega frú fröken Hexia þjást af þekkingarskorti. Og þið hin eruð engu betri.

Þessi skortur á visku felst í því að þið skiljið hvorki né þekkið að því mér sýnist eðli fíknar.
En ég, sem hef mörgum sinnum gengið í gegnum þá þraut að hætta að reykja, veit allt um hennar skítlega eðli.

Eftir afeitrun í nokkrar vikur hverfur löngunin að mestu.
Það getur hinsvegar verið hættulegt ástand, því það veldur tilhneigingu til sjálfsblekkingar.
Maður fer að telja sér trú um að allt í lagi sé að fikta, hlutirnir fari aldrei í sama far og áður.

Og svo fær maður sér vindil að tilefni 120ára afmæli langömmu og til að gera langa sögu stutta þá tekur það um það bil þrjár vikur að komast í sína þrjá dagpakka aftur.

Örvænting ykkar vegna skorts á fíkn er því sjálfsblekking.
Fíknin er til staðar hún fór aldrei neitt, þið bara sveltuð hana þar til hún lagðist í dá.
Og þar liggur hættan mikla, skepnan deyr ekki meðan þið lifið, legst í dvala sé hún svelt en rís upp jafn öflug og fyrr jafn skjótt og henni er gefið.
Þið eruð nú þegar farin að ögra henni með molum og um leið og hún vaknar heltekur hún ykkur á ný.

Góðar stundir og gleðilega nautn.

   (7 af 8)  
8/12/04 15:01

Haraldur Austmann

Kannast við þetta.

8/12/04 15:01

Heiðglyrnir

Hmmm. Skemmtilegt, gott að þau eru ekki bara e-ð lasin.

8/12/04 15:02

Ugla

Er engin leið að skipta út reykingunum og finna sér einhverja snyrtilega innifíkn í staðin, t.d kynlífs eða spilafíkn?

8/12/04 16:00

Steinríkur

Ugla: vantar þig *hóst* "spila"-félaga? [Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið]

8/12/04 16:00

dordingull

Því miður Ugla mín er ég hræddur um að það gangi ekki.
Fíkn er kynjaskeppna sem er þeim ósköpum búin að þótt þú fáir leið á henni og náir þér í aðra þá er útilokað að losna við þá fyrri og því situr þú uppi með báðar.
En það má ekki rugla saman ávana og ásókn í það sem manni finnst gott og eða skemtilegt eins og að láta klóra sér á bakinu eða annarstaðar, spila, dansa, eða að horfa á boltaleiki, og svo aftur fíkn.
Fíkn er sjúklegt ástand. Hjá þeim verst höldnu raðar tölvan sem þeir hafa fyrir aftan augun hlutunum í eftirfarandi forgangsröð: 1 Öndun 2 Hjartsláttur 3 fíknin. Allt annað verður að víkja.

8/12/04 16:00

Vestfirðingur

Reykingar mjög heilla rafta
rettuna færi ég Skafta
fáðu þér smók
og sopa af kók
og sjúgð’ í þig kosmíska krafta
(Höf. Valgeir Guðjónsson)

2/11/04 20:00

Leibbi Djass

Dordingullinn er góður.

dordingull:
  • Fæðing hér: 10/10/03 13:52
  • Síðast á ferli: 20/6/13 19:39
  • Innlegg: 2406
Eðli:
AA,HA!
Fræðasvið:
Mangado
Æviágrip:
Hví þarf ég að endurskrifa ævisögu mína?Man ekki með nokkru móti hvaða tegund ýkju og skreytingarlistar var notuð í 1.útgáfu. HVAR ER HÚN NÚ?! Týndist handritið kannski í hafi? Mun þá gera mitt besta við endurritun en vil þá fá tryggingarféð greitt.