hvað var ég að huxa
Nei, viti menn.
Plebbin svaf í 15 klst samfellt. Án þess að rumska!
Hvaða helvítis leti er þetta í manni. Nú þarf plebbin að ná öllum þessum tíma upp með að vaka í 2 sólarhringa. Time is money!
Plebbanum dreymdi þó marga skrítna drauma, suma ætlar plebbin aldrei þó að minnast á við nokkurn mann.
Versta við þennan svefn er hvað plebbin er þreyttur eftir hann.
En nú er bezt að fara að koma einhverju í verk!
bölvuð leti.
Góðar stundir,
Plebbin
Þetta hljómar mjög líkt minni upplifun. Hjálpaði það nokkuð til að ég teygaði áfenga drykki í stórum stíl í gærkvöld og nótt. Urðu draumarnir töluvert skrautlegir fyrir vikið.
Ég vaknaði kl. 13, sofnaði aftur um kl. 16 og var að vakna... þetta hefur ekki gerst í mörg ár. Gaman að gera sofið svona, en eins og plebbin segir þá verð ég sennilega vakandi til morguns.
Og ég er þreytt!
í söguna má sækja, marga góða speki, á góðum stað, bls 146, í góðri bók stendur, að maður hvíli í sig þreytu, og sofi í sig svefn. Margsönnuð vísindi ef að ég miða við það sem ég hef séð og reynt.