— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Tigra
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Dagbók - 1/11/04
Ath ekki fyrir viðkvæma!

Ok.
Ég veit að marga á eftir að reka í rogastans þegar þeir lesa þetta.. og sumir jafnvel eftir að verða örlítið hneykslaðir en vonandi á ég ekki eftir að særa blygðunarkennd neins.
Það sem hefur nefnilega verið að angra mig er spurning sem ég get ekki svarað.. og þessvegna spyr ég ykkur.

Geta karlmenn pissað upp í rassgatið á sér?

   (33 af 83)  
1/11/04 14:01

Limbri

Ef spurt er: geta allir karlmenn pissað upp í rassgatið á sér. Þá er svarið: nei.

Ef spurt er: geta einhverjir karlmenn pissað upp í rassgatið á sér. Þá er svarið: já, líklega einhverjir.

En svo við ég þá koma með spurningu á móti: hvers vegna í helbláu himnaríki ertu að spyrja að svona ógeðslegri spurningu ?

-

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Já, en það er afskaplega erfitt. Ég hef ekki prófað það en til þess að það sé hægt þá býst ég við því að viðkomandi verði hundhlandblautur á bakinu.

1/11/04 14:01

Isak Dinesen

Ég þorði ekki að lesa þetta félagsrit. Er það gott?

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

En ég held að nú sé kominn tími á að stofna þráð sem heitir Pælingar... ég geri það.

1/11/04 14:01

Litla Laufblaðið

O takk yndið mitt. Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi. Ekki að þetta sé léleg spurning ..bara fyndið.

1/11/04 14:01

Stelpið

En önnur pæling: geta karlmenn haft endaþarmsmök við sjálfan sig?

1/11/04 14:01

Ugla

Ég veit ekki hvort þeir geta það en þekki nokkra sem hafa án efa reynt...

1/11/04 14:01

Litla Laufblaðið

[Pælir í pælingu stelpsins]

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Ég minni á þráðinn á ALMENNT SPJALL sem heitir pælingar

1/11/04 14:01

Limbri

Ég myndi gera mér það í hugarlund að það sé erfitt að hafa endaþarmsmök með liminn í öðru ástandi en blóðfylltan. Í slíkri stöðu vísar hann einkar mikið frá endaþarminum og get ég ekki með góðu ímyndað mér að það væri hægt að beygja hann í það góðan hring að hann næði aftur fyrir umræddan. Kannski er þetta hægt með hljálp ormaganga.

-

1/11/04 14:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég held að svarið hljóti að vera nei. Enn Tigra af hverju hugsar svona prúð stúlka um þettað?Er þettað eithvað skólaverkefni sem þú þarft að skila frá þér?

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Ætli hún sé ekki í RÚMFRÆÐI [orgar af hlátri]

1/11/04 14:01

voff

Svo er það hin sígilda spurning hvort einhver er nógu liðugur og með nægan stökkkraft til að hoppa upp í rassgatið á sér. Verðugt rannsóknarverkefni. Og er ekki alltaf verið að tala um að það eigi að efla rannsóknarháskóla og setja meira opinbert fé í nýsköpun á grundvelli rannsókna.

1/11/04 14:01

Órækja

Þú meinar líklega "Vatnsaflsfræði" Ívar. [Slær á létta strengi]

1/11/04 14:01

Stelpið

Minnir að ég hafi einhvern tímann lesið að karlmenn með tippalengd töluvert yfir meðallagi ættu að geta gert þetta með hann hálfstífan... [Veltir fyrir sér sannleiksgildi heimildar sinnar]

1/11/04 14:01

dordingull

Það sem þessum kattarbjánum getur dottið í hug.

Rídd þér með rófunni!

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Pælingaþráðurinn á Almennu Spjalli virðist ætla að taka þetta.

1/11/04 14:01

Limbri

Stelpið: ég er kannski ekki rétti maðurinn til að svara þessu.

[Horfir aumingjalega á skjáinn]

-

1/11/04 14:01

Litla Laufblaðið

Vertu ekki að þessu bulli Limbri minn.

1/11/04 14:01

Limbri

Ég er að segja það satt ! Ég á bara ekkert að vera að tjá mig um eigin-endaþarmsmök. Veit ekki hví í ósköpunum ég var að ota mínum tota í þetta umræðuefni. Reynslan er engin og kröfurnar háar.

-

1/11/04 14:01

Stelpið

[Flissar að krúttunum]

1/11/04 14:01

hlewagastiR

purningin útilokar ekki notkun hjálpartækja.

Ég held að gúmmíslanga af hæfilegri lengd og breidd ætti að leysa málið. Skiptir þá lengd tóls, teygjanleiki o.þ.h. ekki máli. Né heldur sú hindrum sem þéttvaxinn pungur gæti reynzt.

Hitt er svo annað hvor einhver hafi sérstakan áhuga á beina þvaglátum sínum í þennan sauruga farveg. Þó ætti það að geta auðgað nokkuð litrófið hjá fólki með sk. anal-creampie-fetish.

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Eitthvað finnst mér eins og það mætti nota slöngu í þetta tilvik... Sjálfbær stólpípa myndi það kallast

1/11/04 14:01

hlewagastiR

<heldur áfram með fyrra komment sitt>
...já eins og t.d. hann Ívar.

1/11/04 14:01

Furðuvera

Ooooooooooooooooooooj.
[Flissar eins og súkkulaði með hnetum og karamellum]

1/11/04 14:01

Ívar Sívertsen

Ha? Hvað meinarðu Hlewi?

1/11/04 14:01

Nermal

Kanski er hægt að míga í sitt eigið rassgat... en ég sé bara ekki nokkurn tilgang með að prufa.

1/11/04 14:01

Heiðglyrnir

Hahahahahahahahaahahahahahhahaahhah...Tigra hahahahahahahahahhaahahahhahahahh þú er svo biluð hahahahahahahahahah. þetta var fyndið, og það eru fullorðnir menn hér að svara þessu hahahahahahahaahahahahahahahahhah..Deyr úr hlátri..!..

1/11/04 14:01

Órækja

[Bendir Bláskjá á að hann var sjálfur að svara félagsritinu]

1/11/04 14:02

Heiðglyrnir

[Bendir Órækju á að það er eitt að setja inn athugasemd við félagsrit og annað að svara spurningum þess]

1/11/04 14:02

Galdrameistarinn

Ég verð að játa að mig langar ekki mikið í þannig stólpípu.

En hvernig í fjandanum datt þér þetta annars í hug????????????????????????????????

1/11/04 14:02

Ívar Sívertsen

Já Tigra, hvernig í dauðanum datt þér þetta í hug? Ertu flutt upp á Langjökul og hefur ekkert að gera þar?

1/11/04 14:02

hundinginn

Týgra. Þeir geta það sko vel. En til þess þurfa þeir að vera öldungis drullu FULLIR!
Elskaþig.

1/11/04 14:02

Þarfagreinir

Ég útnefni þetta hér með dýpsta félagsrit í sögu Gestapó. Þótt stutt sé er það ótrúlega úthugsað og tekur á mikilvægu málefni sem alla varðar. Þetta sést glögglega á umræðunum í kringum það, sem eru þær lengstu og mestu í manna minnum.

1/11/04 14:02

Ísis

Á maður ekki að segja til hamingju? - þetta hlýtur að vera það félagsrit sem hefur fengið flestar athugasemdir.

Góð pæling samt og svörin ekki síðri :D

1/11/04 15:00

Litli Múi

Já ég er alveg pottþéttur á því að allir karlmenn geti það ef viljinn er fyrir hendi.

1/11/04 15:00

Nafni

Tigra!!... ég veit að það er ljótt að svara spurningu með annarri spurningu en : Hefur karlamaður pissað upp í rassgatið á þér?

1/11/04 15:00

Sæmi Fróði

Þetta félagsrit og þessi svör eru viðbjóðsleg [fylgist með af áhuga]

1/11/04 15:01

Nornin

Komandi frá þér, finnst mér þessi spurning ekkert skrítin! En ósmekkleg er hún, já sei sei.

1/11/04 15:01

Steinríkur

Þið eruð öll klikk!
[Fær sér sæti í garðstól með popp og kók og fylgist með hamagangnum]

1/11/04 15:01

Vladimir Fuckov

Nei. Það eru bara Rómverjar sem eru klikk.

1/11/04 15:01

krumpa

Mér finnst þetta bara gríðarlega skynsamleg og áhugaverð spurning og ætla að setja upp tilraunastofu heima í kvöld...

Ég las samt að einn eða tveir af hverjum þúsund karlmönnum væru það liðugir að þeir gætu haft munnmök við sjálfa sig - ætli þeir fari nokkurn tíma út úr húsi???

1/11/04 15:01

Sundlaugur Vatne

Mér finnst þetta nú ekki eiga heima í hillu félagsrita.

1/11/04 15:01

Tigra

Ahahaha.. ég held ég sé að slá öll met hérna í hversu margir eru búnir að svara þessu.

1/11/04 15:01

Hóras

...Þú og þínar typpapælingar...

1/11/04 15:02

Jóakim Aðalönd

Nei, ég held ad félaxrit dýsildjofuls hafi fengid fleiri svor. Ég hef ekki einu sinni áhuga á ad vita hvort karlmenn geti pissad í rassgatid, enda ótharft med ollu.

1/11/04 16:01

Isak Dinesen

Ahh, vertu ekki of viss Jóakim minn. Eitt sinn var ég á ströndinni og settist af vangá á marglyttu ... kannski læt ég þessa sögu bíða betri tíma.

1/11/04 19:00

Hildisþorsti

Ég held að útfrá þyngdar og þrýstingsfræðinni að þetta sé ekki hægt.

Ímyndum okkur lokaðan kút með vatni í.
Leggjum nú rör úr kútnum og inn í hann aftur.
Til að fá af stað rennsli um rörið þarf að hafa hringrásardælu.

Þannig að til að þetta sé mögulegt þyrfti í flestum tilfellum slöngu og miðflóttaaflsdælu (til að mynda ekki of mikinn þrýsting).

Ég mæli með við þessa tilraun að vera staðsettur í baðkari, nota ekki hosuklemmur og hafa straumrofa á dælunni.

3/11/04 06:00

sultarbrandur

Jebb. No problem.

4/12/05 06:01

Brauðfótur

Já: Ef maður stendur á haus og passar að bunan hafni á réttum stað.
Þessi stelling er þekkt sem "gosbrunnurinn".

4/12/05 22:01

Tina St.Sebastian

Er þá ekki betra að vera með trekt? Nema...æ, nevörmænd.

Tigra:
  • Fæðing hér: 26/9/03 14:44
  • Síðast á ferli: 8/7/15 13:56
  • Innlegg: 11354
Eðli:
Ég er nú bara saklaus kisa... ekki mjög hættulegur tígur hér á ferð, nema þið reitið mig til reiði auðvitað.Ég hef enn minn kjaft og mínar klær.. þó svo að ég noti þær sjaldnar en flestir af mínum kynstofni. Á íslandi sjáiði til er erfitt að vera smyglað tígrisdýr og þessvegna þarf ég að láta lítið fyrir mér fara.
Fræðasvið:
Ormalífeðlisfræðingur og formaður Grasormafélags Íslands, talsmaður fyrir tígrisdýr á Íslandi, framúrskarandi í Færeyingarannsóknum.
Æviágrip:
Þið þurfið að ferðast alla leið til Rússlands ef þið viljið finna heimaslóðir mínar. Ég er nefnilega Síberíu tígur (nei síberíutígrar eru ekki hvítir, hvít tígrisdýr eru í einstaka tilfellum albínóar (þá án randa) en hvíti liturinn á hinum eiginlega hvíta tígri stafar af genaerfðum í Bengaltígrum)Ég ólst þar upp í 5 hvolpa hópi og móðir okkar mjög ástrík en jafnframt ströng.Ung að aldri tók ég upp á því að ferðast og var því miður fönguð í Indlandi og send í dýragarð í Frakklandi.Þar barðist ég fyrir frelsi mínu í 2 ár og slapp að lokum og gerði allt vitlaust í dýragarðinum. Ég flúði land og laumaðist til Bretlands og þaðan í skip sem var að flytja ýmsar kjötvörur til Bandaríkjanna (heppin ég). Ég lifði sældarlífi á leiðinni en það gekk mikið á þegar skipverjar uppgötvuðu mig. Þeir flúðu skipið af skelfingu en ég rak áfram og strandaði á Íslandi þar sem ég hef lifað góðu lífi síðan.Íslendingar eru gott fólk... ekki of saltir.