Ég verð að hafa á því orð
sem Enter bar á borð.
Apafésið endanlegt
Er ömurlegt!
Mynd ég sendi sæta inn,
Sumardaginn fyrsta.
Svarið fékk ég nú um sinn
(Mér finnst hún bara ekkert lík þér)
Myndin sem ég tók af mér!
Er fyrir ykkar augum nú opinber.
Hvernig í óskupunum get ég sett umrædda mynd hér inn?
Góð sem ég er að fatta það sjálf!
Þarna er myndin af mér komin.
Annars grunar mig að Enter hafi einfaldlega fengið "cute overload" af þessari mynd. Hann er svo viðkvæmur fyrir svoleiðis ræfillinn.
Mér finnst apinn miklu fallegri en þessi skrípamynd þarna. Þessi teiknimyndakúla með lappir, vængi og allt of stór augu hefur bara ekkert að gera hér á Gestapó.
Svona eftir á að hyggja þá eru þessar myndir ekki svo ólíkar.
Báðar hafa þær stór augu , horfa beint fram og hafa hár eða vængi út frá höfðinu.
Ef þú vilt að Enter sýni myndinni áhuga skaltu lauma orðinu "lesbía" í titil hennar
Þú fékkst nú frétt á forsíðu út á þessa mynd, þannig að þú ættir ekki að vera að kvarta. <Glottir eins og fífl>
[Enter: Gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, styrk til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli.]
Láttu þetta vera bænina þína í kvöld og hættu svo að fjasa í almættinu út af smámunum.
Hvurn andskotann er eitthvað helvítis fokkings mafíuaukaegó að rífa kjaft! Getiði ekki bara haldið ykkur í mafíuleiknum?
[skellir hurðum]
Þú mátt teljast heppinn að Enter svari þér yfir höfuð. Má í raun teljast ótrúlegt að Guð megi vera að þessu...
Guð verði með þér Jóakim!
Afhverju fékk ég ekki sigurverðlaunin fyrir að herma eftir þér?
Ég úttúðaði höfundum í hverju félagsritinu á eftir öðru.
Skammaði þau og hirti og gerði mitt besta til að gera lítið úr þeim.
Það er þinn stíll, er það ekki Jóki?
Þegiðu bara Apríl. Þú tókst ekki einu sinni þátt. Fyrir utan það: Þú kemst ekki með trýnið þar sem ég hef stélið.