— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Apríl
Fastagestur með  ritstíflu.
Dagbók - 5/12/07
Myndin mín

Ég verð að hafa á því orð
sem Enter bar á borð.
Apafésið endanlegt
Er ömurlegt!
Mynd ég sendi sæta inn,
Sumardaginn fyrsta.
Svarið fékk ég nú um sinn
(Mér finnst hún bara ekkert lík þér)
Myndin sem ég tók af mér!
Er fyrir ykkar augum nú opinber.

   (1 af 1)  
5/12/07 05:02

albin

Svolítð apaleg mynd.

5/12/07 05:02

Jón Spæjó

Til hamingju með myndina.

5/12/07 05:02

Apríl

Hvernig í óskupunum get ég sett umrædda mynd hér inn?

Góð sem ég er að fatta það sjálf!
Þarna er myndin af mér komin.

5/12/07 05:02

Tigra

Við eyðum innleggjum til skiptis Apríl.

5/12/07 05:02

Tigra

Annars grunar mig að Enter hafi einfaldlega fengið "cute overload" af þessari mynd. Hann er svo viðkvæmur fyrir svoleiðis ræfillinn.

5/12/07 05:02

Apríl

Já Tigra þvi trúi ég Því Enter er svo mikið cute sjálfur.

5/12/07 05:02

Einn gamall en nettur

Þessi mynd hefði verið meiri svona maí.

5/12/07 05:02

Apríl

Segir sá gamli, sem má nú mæla. [Ljómar upp]

5/12/07 05:02

Lopi

Ég er nú ánægður að fá fleiri apa hingað.

5/12/07 05:02

krossgata

Mér finnst fésið sem þú berð núna betra en þetta merki þarna uppi.

5/12/07 05:02

Hexia de Trix

Mér finnst apinn miklu fallegri en þessi skrípamynd þarna. Þessi teiknimyndakúla með lappir, vængi og allt of stór augu hefur bara ekkert að gera hér á Gestapó.

5/12/07 05:02

Apríl

Svona eftir á að hyggja þá eru þessar myndir ekki svo ólíkar.
Báðar hafa þær stór augu , horfa beint fram og hafa hár eða vængi út frá höfðinu.

5/12/07 05:02

Kargur

Ef þú vilt að Enter sýni myndinni áhuga skaltu lauma orðinu "lesbía" í titil hennar

5/12/07 05:02

Stelpið

Hvernig getur sá sem heitir Apríl verið annað en api?

5/12/07 05:02

Billi bilaði

Þú fékkst nú frétt á forsíðu út á þessa mynd, þannig að þú ættir ekki að vera að kvarta. <Glottir eins og fífl>

5/12/07 05:02

Huxi

[Enter: Gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, styrk til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli.]
Láttu þetta vera bænina þína í kvöld og hættu svo að fjasa í almættinu út af smámunum.

5/12/07 06:00

Grágrímur

Hvurn andskotann er eitthvað helvítis fokkings mafíuaukaegó að rífa kjaft! Getiði ekki bara haldið ykkur í mafíuleiknum?
[skellir hurðum]

5/12/07 06:00

Apríl

Æ já Lopi þú ert sætur. Þín vegna hef ég sætt mig við myndina.

5/12/07 06:01

Aulinn

Grágrímur taktu bara thátt næst!

5/12/07 06:01

Apríl

Tekur undir orð Aulans og skorar á Grágrím að taka þátt í næsta leik.

5/12/07 01:01

Lopi

[Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið]

5/12/07 02:00

Jóakim Aðalönd

Þú mátt teljast heppinn að Enter svari þér yfir höfuð. Má í raun teljast ótrúlegt að Guð megi vera að þessu...

5/12/07 02:01

Apríl

Guð verði með þér Jóakim!
Afhverju fékk ég ekki sigurverðlaunin fyrir að herma eftir þér?
Ég úttúðaði höfundum í hverju félagsritinu á eftir öðru.
Skammaði þau og hirti og gerði mitt besta til að gera lítið úr þeim.
Það er þinn stíll, er það ekki Jóki?

5/12/07 03:00

Jóakim Aðalönd

Þegiðu bara Apríl. Þú tókst ekki einu sinni þátt. Fyrir utan það: Þú kemst ekki með trýnið þar sem ég hef stélið.

5/12/07 03:01

Apríl

Þegiðu Jóki, ég tók víst þátt! Eða réttara sagt eigandi minn.

Apríl:
  • Fæðing hér: 21/4/08 22:41
  • Síðast á ferli: 21/4/09 02:53
  • Innlegg: 398