Tveir árshátíðardagar virðast njóta mestrar hylli.
12. nóvember og 19. nóvember virðast njóta mestrar hylli. Hér er komin ný atkvæðagreiðsla um það hvor dagurinn verður fyrir valinu:
http://FreeOnlineSurveys.com/start.asp?sid=tiy2mriqx4q8v4o980121
(Þessu óriti verður eytt að kosningum loknum og að fenginni niðurstöðu).
Ég er búinn að kjósa 47 sinnum. Maður velur bara Delete Cookies og kýs aftur. Dásamlegt. (Kaus ortast Framsóknarflokkinn.)
Eru haldnar utankjördæma kosningar fyrir þá sem komast ekki á kjörstað ?
Hmm. Ég kaus að það væri sama hvort kvöldið, en svo fattaði ég að 12. er betri. Má ég þá ekki bara kjósa tvisvar að 12. sé betri, annað til að jafna út vitlausa atkvæðið og hitt til að taka af allan vafa?
Alls hafa verið greidd 14 atkvæði og eru nýjustu tölur sem hér segir:
12. nóvember: 2
19. nóvember: 5
Allt af ofantöldu: 6
Ekkert af ofantöldu: 1
Ég gæti boðið ykkur til mín, ef það væri ekki svona fjandi óhagkvæmt fyrir ykkur.
Höldum bara eitthvað sukk eftir áramót. Það eru allir hvort eð er bara uppteknir í prófum eða að undirbúa sólrisuhátíðina. Febrúar eða mars?!?
Þar eð ljóst virðist að óvinir ríkisins hafa hindrað árshátíð í allra nánustu framtíð líst oss afar vel á það sem Huxi kallar sukk eftir áramót [Ljómar upp].
Ég styð þessa tillögu heilshugar, bæði sjálfur og í umboði Pó. Tvöfalt samþykki!
Ég geri ekki upp á milli 12. og 19. nóvember. Báðir dagarnir henta mér stórvel.