...með sig?
Hvernig væri að halda dag jákvæðninnar svona einusinni í viku? Þá gætum við öll hætt að væla yfir leiðinlegu nýliðunum og aukaegóunum sem tröllríða öllu þessa dagana og einbeitt okkur að því að hæla hvoru öðru og vera góð.
Ég legg til að við lítum öll í eigin barm og öthugum hvort gæti verið að það sé svartsýnin og hið endalaus kvart í okkur sjálfum, sem er búið að einkenna síðastliðna daga, sé að drepa stemninguna en ekki örfá aukaegó og nýliðar.
Ég gef ykkur öllum, gömlum, nýjum og gerfipóum 5 stjörnur fyrir að vera frábær.
Ákavíti og pönnukökur eins og þið getið í ykkur látið.
Lifi sannleikurinn!
Yfir og út.
Og ég sem ætlaði að fara að semja stórbrotið ljóð gegnsýrt af þunglyndi og norrænum ömurleika.
Jæja, látum það bíða, sólin skín og Álfelgur er dúlla eins og allir hinir á Gestapó.
Krossa: Endilega birtu ljóðið. Þú getur notað einhvert aukaegóið þitt til að koma því á framfæri. [Glottir sem hvert annað fífl]
Ég á bara eitt aukasjálf Huxi minn og það er vandræðaunglingur sem hefur verið sendur á upptökuheimili og fær ekki að birta nein ljóð.
[Geymir hugmyndina frá Huxa til betri tíma og glottir eins og kýrskýr]
Hvernig væri að stofna þráð, þar sem menn myndu gera grein fyrir sér? Þ.e. hvert er aðalegó þeirra og upptalning á aukaegóum, ef þau eru til staðar.
(Einnig gætu menn gengið skrefinu lengra og greint frá raunheima nafni sínu (ekki annarra, þó þeir þekki þau) ef þeir kysu svo).
Þeir sem gerðu hreint fyrir sínum dyrum myndu svo fá sakaruppgjöf frá forseta vorum og ríkisstjórn, gegn því að ljóstra upp um alla þá sem þeir þekkja og hafa ekki gert hreint fyrir sínum dyrum.
Síðan yrðu réttarhöld yfir þeim einstaklingum sem ekki gáfu sig fram af fúsum og frjálsum vilja og hafa verið afhjúpaðir. Um það mætti stofna sér þráð.
Þetta myndi hreinsa andrúmsloftið og Gestapó yrði staður sátta og friðar og mannkærleika eins og í árdaga.
Hmm... og þeir sem verða afhjúpaðir verða að kjafta frá öðrum. Athyglisvert, athyglisvert.
Ég kannast samt eitthvað við þessa hugmynd... fékkst þetta lánað einhversstaðar Skrabbalingurinn minn?
Nei Kiddi. Þeir sem afhjúpa sig sjálfir fá þennan valkost til þess að sleppa við refsingu. Þetta er alþekkt í dómsbransanum.
Álfelga vinkona. Nei, ekki mér vitanlega. Annars er ekkert svo sem nýtt undir sólinni.
Andþór er farinn að njóta sumarsins með stúlkunni sinni. Þið sitjið uppi með mig í staðinn.
Knús samt
Æðislegur pistill. Semjum öll ástarljóð til Bölla. <Fær sér pönnsur og smjattar hátt>
Ég er ekki GHE ég er fjarðarsvalan sem syngur á útvatnunnarhælinu