Mig langaði til að fá álit mér málfróðari aðila á því hvort að það sé ekki rétt skilið hjá mér að hin vanalega beyging á kvenmannsnafninu Sigríður sé orðin úrelt.
Hér er Sigríður um Sigríði frá Sigríði til Sigríðar.
Eftir að mér féll sú vitneskja í skaut að nefnifallsmyndin af Sig væri Súg, þá finnst mér það rökréttast að héðan í frá væri hið áðurnefnda kvenmannsnafn beygt eins og hér segir:
Hér er Súgríður um Sigríði frá Sérríði til Sínríðar.*
Borðleggjandi ekki satt...
*Leiðrétt 22.08.'09
Sigríður vonar að sér ríði helvítið á henni Sérríði.
Er það ekki til Sínríðar, annars ?
Þegar þú bendir á þetta þá sér maður hvað það er undarlegt að enginn skuli hafa átta sig á þessari staðreynd áður. Eigum við að ræða það eitthvað?
Það er um þrennt að ræða. Ég er slakur í málfræði, (sem er rétt) góður brandari hefur farið framhjá mér eða Huxi var að droppa sýru. [Klórar sér í höfðinu]
dorri. Þú hefur verið það lengi í burtu að þú veist kannski ekki að nefnifallsmynd afturbeygðafornafnsins "sig" er hér viðurkennt sem rétt mál og er "súg"
Sigfinnur fær þá beyinguna;
Súgfinnur, um Sigfinn, frá Sérfinni, til Sínfinnar.
Skál ! Er einhversstaðar að finna fjelagsrit eða innlegg um hvernig nota ber 'súg' ? Vjer munum þær reglur ei nægilega vel.
Þetta er hárrétt athugað hjá þér Grýta. Það væri gaman ef að fleiri mannanöfn fyndust sem rétt væri að súgvæða.
Vlad: Spurðu Billa, hann er manna ötulastur við framteygja afturbeygða fornafnið, t.d. er hann iðinn við að klóra súg í höfuðstafnum.
Súgurður um Sigurð, frá Sérurði til Sínurðar...
Kv. Jóhanna Sínurðardóttir...
Það var, minnir mig, Ég sjálfur sem skrifaði innlegg um þetta. Það má leita í innleggjum hans að orðinu súg.
Annars beygjist nú, skv. þessu vestfjörðurinn góði eftirfarandi:
Súgandafjörður
Sigandafjörð
Sérandafirði
Sín andafjarðar.
Legg ég því formlega til, í þrettánriti, að forsetaembættið geri ofangreindan fjörð að griðastaða andastofns Baggalútíu.
[Telur sig núna skilja þetta þannig að súg leggur í að nota svona orðalag í fyrsta sinn]
Það tilkynnist hjer með opinberlega að Súgandafjörður er hjer eftir sjerstakur griðastaður andastofns Baggalútíu [Sendir Hexiu og Jóakim forsetabrjef í þrettánriti þessu til staðfestingar]. Sjer í lagi eru súgendur velkomnar þar en einnig spilastokkendur, stjórnendur, rendur, hendur og straumendur (þó ekki Sigfús).
Þetta tvennt er reyndar nátengt. Eini munurinn á því sem Grýta nefnir og því sem Huxi nefnir er að það sem Huxi nefnir er dautt en það sem Grýta nefnir er það ekki. Sama gildir um spilastokkanda og spilastokkendur svo annað dæmi sje nefnt - þar er munurinn sá sami.
Lifandi er semsagt dauður.
En hvað með skotnar lifendur, eða borðleggjendur? Eru þær lifandi eða dauðar?
[Smjattar á málfræðinni]