Vígaguðinn. Leikrit eftir franska konu. Kona sem heitir Melkorka leikstýrir. 2 kallar 2 kvensur leika. Sýnt á smíðaverkstæðinu í Þjóðleikshúsinu.
Ég fór í leikhús í gær. Það var gaman. Glotti oft og hló stundum hátt. þótti það kostur að það var ekki hlé og sýningin tók rétt um 90 mín. Sætið mitt var þó frekar lélegt og brakaði í bakinu á því þegar ég hallaði mér aftur.
Ég fór á leiksýningu á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Þau sæti eru vart fyrir fólk yfir 160 c.m.
Ég hef lent í svipuðu, nema að það var hlé og sætið brakaði ekki og þetta var ekki gamanleikrit heldur mjög sorglegt og ég grét og grét. En það góða við þetta allt var að það var hvítvín í hléinu.
Jarmi: Og ekkert meira, sýningin búin, allir fóru heim.
Krossgata: Brakið stytti mér stundir þegar minna var að gerast á senuni, en það var ekki oft, samt.
E.g.e.n: Hjólastólaaðgengi var ágætt þegar inn var komið, en vinnupallar og vesen fyrir utan.
Garún: Það var ekkert hlé, svo hvítvínssull var ekki inn í myndinni. Ef hægt hefði verið að fá Ákavíti, hefði verið betra að hafa hlé, jafnvel tvö.
Iss. Ég fór einusinni í leikhús líka og það brakaði í hálsinum á mér. Svo er líka miklu effektívara að fara bara í bíó og láta braka í poppi.