Kínverjar á góðu verði.
Á til skiptanna nokkurn slatta af Kínverjum sem mér áskotnuðust nýlega á ferð minni um austur kína. Þeir eru kassavanir en landlausir. Þeir eru leikglaðir, en þeim hættir til þess að týnast því þeir hænast að víðernum. Þeir eru örmerktir og með gps flögu og kosta um 15 þús kall stykkið. Get farið með þá til Ögmundar og látið bólusetja þá fyrir landakaupum. En það kostar 5 þús kall aukalega.
Hafið samband í síma 5522310
Þetta eru öndvegis kínverjar, ekkert drasl. Það kostar aukalega að fá salernisvana kínverja.
Eigið þjer nokkuð Kínverja sem hægt er að sprengja ? [Ljómar upp og sjer fram á stækkandi vopnabirgðir]
Salernisvana? Svifta af þeim salerni? Eða salernisvenja, kannski? ('i allvöru, hvernig er það?)
Hehe – salernisvanir eru þeir sem eru vanir að nota þannig. Biðji maður um þannig í fleirtölu og karlkyni, biður maður um salernisvana. En kannski alveg jafn gott að vera skilningsvana.
Kassavanir Kínverjar stuðla samt og þess vegna skemmtilegri.
Fjandinn hafi það að ég fari að skipta út Færeyingnum fyrir kassavana Kínverja. Ég sem er búinn að gera hann algerlega húsvanann og temja úr honum allt strok. En verðið freistar...
Huxi, hvað með kynbætur? Æxla saman Færeyingnum og Kínverja? Það væri nú gaman að því að fá fallega dökkhærðan færeying sem talaði kínversku og kynni að nota klósett ha? eða hvað?
Mér var svarað mjög kurteislega þegar ég hringdi, en bentu mér á Flugeldasölu björgunarsveitanna, þar væru þeir í kössum vanalega.
Jú takk fyrir það Gísli Eiríkur og Helgi, það var nú áramótaheitið hjá mér núna 2012.