— GESTAPÓ —
Urmull_Ergis
Nýgræðingur.
Dagbók - 1/12/03
Erfðabreyttar bensínstöðvar

Matrixskur modernismi.

Ég vaknaði upp í nótt og fann mig knúinn til þess að fara og snæða beikonvafða grillpylsu að hætti Select í Öskjuhlíðinni, sem er bensínstöð, olíu og leikfangasala og bókabúð.

–Dokum nú við. Ég vaknaði kl. 3 að nóttu fór í bókabúð og át þar pylsu.
Hefði ég reynt að segja nokkrum manni frá þessu fyrir 10. árum hefði ég verið álitnn við afar slæma geðheilsu.

-Er möguleiki að eftir 10. ár muni ég fara með bílinn í smurningu í Expert og gifta mig í leiðinni í Byko.

-Hvaða verkfræðistofur bjóða uppá hárþvott og klippingu?

   (12 af 23)  
Urmull_Ergis:
  • Fæðing hér: 13/9/03 10:15
  • Síðast á ferli: 5/2/12 21:25
  • Innlegg: 2
Eðli:
-Af fágætri tegund gabbapa, sem eiga uppruna sinn á Súmötru. Skottlausir, en vel vaxnir niður, grænleitir, skapstyggir, matfrekir og málóðir.
-Listelskir og sístarfandi. Öpum þessum hættir til nymphomaniu og ofdrykkju.
Fræðasvið:
-Umhverfisalfræði. -Fjöldi skrifaðra vísindagreina um gulrætur, auk tímamótaritraðarinnar Rollur sem gæludýr.
Æviágrip:
-Minnisleysi einkennir gabbapa, því lifa þeir við þann misskilning að þeir séu nýfæddir á hverjum degi. Því eru æviágrip óþekkt meðal þeirra.