Skráning er opin í Mafíu 85 - Með lífið í lúkunum. Áhugasamir laumi sér inn á Okkar málstað, eða sendi mér einkapóst. Gamlar kempur eru sérstaklega velkomnar.
Það er fátt betra en mafíuleikur til að lyfta brúninni í skammdeginu.
Virtur bridge-, rommí, gúrku, og Hornarfjarðarmannaspilari.
Fræðasvið:
Spilamennskuteoría, gereyðingarvopn, ypsilon, og kynsjúkdómar höfrunga.
Æviágrip:
Uppruni óljós, en getið í Landnámu. Einkum þekktur fyrir víg á konungum, drottningum, gosum, og hundum. Helsti óvinur er Donald Trump, var enda hnepptur í þrældóm af kauða er keppt var um Bermúdaþríhyrningsskálina í fyrsta skipti árið 1835. Slapp og hefndi sín grimmilega er spilað var grand.
Hefur síðan flakkað um heiminn og fjölgað sér, og á þrjá bræður er bera sama nafn.