— GESTAPÓ —
Alfreð Æringi Önd
Óbreyttur gestur með  ritstíflu.
Dagbók - 2/11/05
Fyrsta skipti

Frekar mikill nýgræðingur í þessu.

Taka má það fram, að ég eignaðist plötuna : "Jól og Blíða" fyrir skömmu, og kom hún mér svo sannarlega í jólaskapið. Er ég einstaklega sáttur með hana og framvindu laganna. Uppáhalds lagið mitt verður að vera "Sagan af Jésúsi".
Er ég taktfastur aðdáandi Baggalúts, þó að ég hafi einungis uppgötvað þessa síðu snemma í desember 2006. Mun ég nú reyna að bæta úr því og koma hingað sem oftast.

Kveðjur frá Alfreð Æringja Önd.

   (1 af 2)  
2/11/05 06:02

Herbjörn Hafralóns

Óttaleg fuglafýla er að verða hér inni.

2/11/05 06:02

Offari

Velkominn Önd. Endurkoma andana er bara góð viðvót við allt annað hér.

2/11/05 06:02

Ívar Sívertsen

Hér með tilnefni ég þig Alfreð Æringja Hænu

2/11/05 06:02

Barbapabbi

Hér eru endurskoðendur, - endemis vitleysa. Endar þetta ekki með andafundi?

2/11/05 06:02

Vladimir Fuckov

Eða endurfundum.

2/11/05 06:02

Haraldur Austmann

Tvær endur á dag og önnur með endurkomu. Andskotans.

2/11/05 06:02

Ívar Sívertsen

Ég sé að menn eru farnir að HÆNAST að fiðurfénaðnum

2/11/05 06:02

Húmbaba

Sjaldan er öndunum ofaukið

2/11/05 06:02

krossgata

Voðalega er þetta andlegt.

2/11/05 06:02

Jóakim Aðalönd

Vertu velkominn Alfreð. Alltaf má á sig öndum bæta. Passaðu þig bara að andast ekki.

2/11/05 06:02

Hexia de Trix

Velkominn í andahópinn, Alfred Jodokus Quack.

Ba-GAK!

2/11/05 06:02

Vladimir Fuckov

Og gætið yðar á andbaggalútískum öflum, svo og óvinum ríkisins.

2/11/05 06:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég bíð með öndina í hálsinum eftir næsta riti

2/11/05 06:02

Aulinn

Enn önnur öndin... Þessi er samt voða krúttleg.

[Klappar Alfreði og hendir í hann brauði]

2/11/05 06:02

Ívar Sívertsen

BA-GAK!

2/11/05 06:02

Kondensatorinn

Velkominn !
Nú er hægt að hafa andafundi hér á Gestapó.

2/11/05 06:02

krossgata

[Hugsi]
Verður ekki að búa til tjörn?

2/11/05 06:02

Tina St.Sebastian

Æ, þær fyllast svo fljótt af skít. Endur eru nú ekki hreinlegustu dýrin...

2/11/05 06:02

Hexia de Trix

[Goggar í Tinu]

2/11/05 07:00

Upprifinn

Andafjandar allstaðar.

2/11/05 07:00

Hakuchi

Velkomin önd.

2/11/05 07:00

Skabbi skrumari

[And-varpar]... velkomin...

2/11/05 07:00

Tina St.Sebastian

Hvaða svarti reitur er þetta?

2/11/05 07:00

Rattati

Velkominn, segi ég nú bara.

2/11/05 07:01

B. Ewing

Velkominn missjör Önd. [Bætir Andaglasi á drykkjuseðil Kaffi Blúts.]

2/11/05 07:01

Barbapabbi

...held að menn fari bara að standa á öndinni, þetta fer að verða steikt og ýmsir með öndinni í hálsinum.

2/11/05 07:01

Vímus

Maður verður andfélagslega sinnaður hér
[Varpar öndinni til andskotans]

2/11/05 07:01

U K Kekkonen

Sæll vertu

2/11/05 07:01

Nermal

Vertu velkominn kjúlli.

2/11/05 08:00

hvurslags

Eitt glas, takk.

2/11/05 10:01

Alfreð Æringi Önd

Þakka ykkur öllum fyrir.
Hexía vissi mitt rétta nafn
[Furðu lostinn og hæstánægður]

Alfreð Æringi Önd:
  • Fæðing hér: 4/12/06 17:15
  • Síðast á ferli: 23/10/15 15:00
  • Innlegg: 31
Eðli:
Áræðin Önd sem svífst einskis í baráttunni fyrir réttlæti. Hjálpar hverjum sem er , ef sá hinn sami þarfnast þess. Gulur á litinn, með rauðan trefil, og með dökkgul sundfit.
Æviágrip:
Fæddur í Hollandi í stórum klossa. Missti báða foreldra og öll systkini snemma á lífsferilnum. Alinn upp af Hinrik (Moldvörpu) og hef alltaf litið á hann sem föður minn, þrátt fyrir stríðni Dolla kráku. Hef barist við fjöldamörg vandamál og þar á meðal má nefna:
*Barist gegn kynþáttafordómum (hvítar gæsir gegn svartöndum)
*Barist gegn HIV (Bjargað með fiðlu sem kom frá tungltrúði)
*Barist gegn hvalveiðum (hljóðbylgjur komu þá til bjargar)
*Barist gegn ofveiði á síldarstofninum (þakklátir hvalir hjálpuðu til)
*Barist gegn einvaldinum Dolla (sem var einskonar Napóleon+Hitler)
*Barist gegn ketti sem hrelldi mig í æsku
*Barist gegn manni (og hjálpaði þannig MANNATEMJARANUM)
*Barist gegn illum anda í flösku
*Hjálpað geimverum að flýja jörðina með ávexti

Inn á milli hafði ég svo tíma fyrir kærustuna og vini, auk þess að slaka bara á í skákleik með honum Hinrik pabba.