Ég fór að lesa félagsrit samrafmælisdagseigandamíns, hans Sverfils, og í einu þeirra leggur hann út frá Feliz Navidad. Ég held að ég hafi skilið það eitthvað vitlaust... en er ekki stundum erfitt að hitta tilvonandi tengdafólk í fyrsta sinn?
||: Ph-lís farð’í bað, (það er lykt af þér,)
já plís farð’í bað, (það er nefnilega lykt af þér,)
æ plís farð’í bað,
því að þú lyktar eins og þurrkað tað. :||
Við erum boðin í mat til mömmu,
og þar munum við hitta ömmu,
þú mátt ei verða mér til skammar
svon’í allra fyrsta sinn.
||: Ph-lís farð’í bað, (það er lykt af þér,)
já plís farð’í bað, (það er nefnilega lykt af þér,)
æ plís farð’í bað,
því að þú lyktar eins og þurrkað tað. :||
Þú skalt þinn hálfvaxna hýjung raka.
Þú skalt heillega sokka taka.
Farðu í skyrtu og skæslegt bindi
svo ég skammist ekki mín.
||: Ph-lís farð’í bað, (það er lykt af þér,)
já plís farð’í bað, (það er nefnilega lykt af þér,)
æ plís farð’í bað,
því að þú lyktar eins og þurrkað tað. :||
Ég hef alltaf verið róleg yfir þessum tengdamömmuþætti í lífsjöfnunni. En nú er ég sjálf orðin tengdamamma.
[Glottir meinfýsið]
Býsna skemmtilegt, að ósekju mættu oftar birtast vandaðir frumsamdir textar við alþekkt dægurlög.
Annars hefur mér ævinlega þótt góð lykt af þurrkuðu taði - þetta gerir sveitauppeldið.
Mikið vorkenni ég hverjum þeim sem á tengdamömmu. Fínn kveðskapur annars.