Elsku hjartans Enter minn
allra besti vinurinn,
eigðu við mig orð um sinn
því eitt nú þarf að ræða:
Apakettir eru hér
sem enga hafa mynd af sér,
ósköp ljótir líst þeir mér,
löngum má þá hæða.
Geturðu ekki, góði vin
gefið þeim með apagin
andlit frítt, sem eigum hin
auðvelt með að þekkja,
- þú ert nú svo fitt og fær
flinkur, sætur, öllum kær -
svo ekki lengur apaklær
aulumst til að hrekkja.
Enginn munur er á þeim
öllum, með svo líkan hreim.
Undarlegum apasveim
alltaf ruglum saman.
Þetta mörgum þykir synd,
en þegar fengið hafa mynd,
-við það miklar vonir bind -
verður meira gaman.
Pondus, Gavöðmöndör, Geir Varta, burdilunk, sabbtug, odie, og stundum Þrask eru allir virkir en ósköp ómyndarlegir núna.
Dagsetningin er 20/5/19
Þetta innlegg er hins vegar skrifað uppgangsárið 2007 þegar Enter var virkur, þannig að það eru betri líkur á því að hann sjái það. [Brosir út í bæði]
Afhvurju er ég ekki með lykil af myndasafninu?
Er ekki Sívertssen vitleysingurinn með auðkennismyndavöld?
Sívertsen vísaði á ritstjórn. Ég hef efasemdir um að ég ein geti fengið þá til samstarfs.
Ég veit að sabbtug hefur talað við ritstjórn, einu sinni, ef ekki tvisvar, án árangurs.
Það væri mjög æskilegt að setja myndir í myndasafnið. En vjer óttumst mjög að ritsjórn hafi verið rænt af óvinum ríkisins eða jafnvel Hafþóri Hübner [Hrökklast afturábak og hrasar við]
[Aths. rituð 3.6.2019 23:16]
25.6.2019 14:14: Greinilegt að hjer eru að verki óvinir ríkisins eða jafnvel sjálfur Hafþór Hübner. Ekki er hægt að setja inn "venjuleg" innlegg eða breyta eldri innleggjum en hjer er hægt að tjá sig. Svo virðist sem hafa þurfi samband við Enter.
Og mafíuleikinn verður að klára hjer ef þetta lagast ekki fljótlega.
25.6.2019 23:23: Enter veit núna af þessu, vonandi kemst þetta í lag innan tíðar...
26.6.2019 14:54: Og nú er Enter greinilega búinn að koma þessu í lag [Ljómar upp].