Það er svakalega erfitt hjá mér núna. Ég á erfitt með að ákveða, eða velja. Það er svo margt sem mig langar að skrifa um. Svo ég sit og pælar og grubblar og allt og get ekki áhveðið hvað ég á að skrifa fyrst.
Hvað er mikilvægast "núna"?
Hvað veit ég nógu mikið um til að tjá mig?
Hvað nenni ég að skrifa?
Á listanum hjá mér situr núna:
Evrópusambandið
Aldur og Heilsa
Rauði krossinn
Mengun
Vatn
Rafmagn
Megrunarpillur
Valkvíða
Ljósleiðarar og Rafmagn.
Ljóstillífun Sjáfargróðurs (Færeyskar ransóknir)
Um Kóbalt og Plútóníum í byggingu og rekstri opinberar stjörnusambatsstöðvar.
Áhrif efnistillagna á skapið.
Af hverju skrifa?
Svo liggur á borðinu hjá mér lítill haugur af ljóðum og myndum sem ég er ekki búin að "ganga frá" eða "aetja upp".
Vesen að velja hvar maður á að byrja...
Mjög margir byrja á byrjuninni, en það er samt alls ekki algilt. [Klórar sér í höfðinu]
Margir þjást af valkvíða. Þú getur kannski byrjað þar, þ.e. skrifað lærða grein um valkvíða.
[Starir hugsandi út í loftið]
Ég vil heyra allt um rannsóknir færeyskra sjávarlíffræðinga á ljóstillífun sjávargróðurs og osakasamhengið á milli líffræðinga og vitleysinga. [ljómar upp]
Vjer hefðum mikinn áhuga á ítarlegri ritsmíð um framtíðarhagnýtingarmöguleika kóbalts og plútóníums við að auðvelda byggingu og rekstur opinberrar stjörnusambandsstöðvar, ásamt nákvæmri greiningu á ástæðum þess að eigi hefur enn sem komið er orðið af þessu þjóðþrifaverki [Ljómar upp].
Einnig má skrifa um áhrif mismunandi tillagna að efni til að skrifa um á skap og/eða fýlustig viðkomandi [Ljómar upp].
Af hverju þarftu endilega að skrifa Gaz?
Tvær sexur, sex sexur og prímtöluinnleggið eru miklu betri valkostir. Eyddu tíma þínum þar.
[Hristir hausinn.] Ég legg þetta til en svo ekki meira!!
[Struntar út av sviðinu og skellir á eftir sér.]
Stuttur pistill um almenna kurteisi í kjörbúðum væri mér að skapi. Einnig þætti mér vænt um ef þú skrifaðir lítillega um hvernig gott er að fanga lifandi sel.
Sko! Hvað þetta hefur verið allt hjálplegt, nú hefurðu tekið ákvörðun.
[Ljómar upp]
Nei ha, ég var ekkert að djóka með rafmagnið...mér finnst það áhugavert ritefni.