Mikið ofsalega fer það í taugarnar á mér hvað sumir eru neikvæðir hérna. Rosalegt. Þykjast vera svakalega fyndnir með aulalegar athugasemdir. Samt ekki Gísli, Eiríkur og Helgi. Hann er æðislega fínn. offari er líka rosasniðugur. Kann góðar sögur. Mikli betri sögur en ég. Ekkert stress, bara hress, bless.
Hæ Þetta er frábært félagsrit sem setur mig á stall með meistara bræðrum þrem Takk.
Það er munur á aulalegum svörum og hnyttnum svörum. Sumir hérna eru bara með svartari húmor en aðrir, það er aldrei hægt að gera öllum til geðs...
Annars finnst mér neikvætt hvað gæðum félagsrita hefur hrakað undanfarið (með undantekningum þó).
Það er gasalegt að ég skuli hafa gleymt enter. Hann er ferlega frábær. Alveg meiriháttar. Líka Myglar. Algjörar bombur.
Ekki er minn húmor svartur--nema bara stundum.
SMÁááááBAGGIiiiii--hvar ertu?
Hér er eitt jákvætt ljóð handa SF:
- Heyrðu góði,
ég heiti Sæmi Fróði
og um þig orti níð í litlu ljóði...
...
Æj, svakalega svona erfitt. Miklu meira en ég hélt. Öhhh.
Hvað er SMÁááááBAGGIiiiii? Lítil heyrúlla í hvítu plasti. Fyrir smábýli og hjáleigur. Æðislega veit ég lítið.
Smábaggi var/er holdgervingur svarta húmorsins hér á Gestapó. Fór í taugarnar á öllum. Eftir að þessi AUMINGI lét sig hverfa skilja nýliðar ekki að hér er hægt að skamma menn og kalla þá öllum illum nöfnum snúa útúr fyrir þeim og hvað eina án þess að manni sé nokkuð illa við þá.
Og eftir að Frelli letni í Guantanamo er þetta að verða eins og sunnudagaskóli.
En það stendur til bóta því ég var að frétta að göngin frá Kúbu væru að nálgast Reykjanes.
Svo þú skalt fara að passa þig nýliðakálfurinn þinn.
En það er jákvætt að það skuli vera fimmstiga hiti.
Vertu velkominn
Ekki hef ég talið sjálfan mig sérstaklega neikvæðan, en það er nú samt þannig að sumr með svörtum húmor reyna að benda nýliðum á hverjar venjurnar séu hérna inni þeim til leiðbeiningar og skemmtunar
Æj æj æj. Þetta er satt... Lenti í nokkrum, reyndar kom ég með fáfróðan pistill um mafíu en ég var rakkaður auðvitað niður að ég sé asni og vangefin ofl