Vjer 'fílum' þetta hins vegar eigi og erum í fýlu sökum þessa. Leggjum vjer hjer með opinberlega til að 'fjelagsriti' þessu verði hent enda óþarfi að hafa það í tveimur eintökum [Veltir fyrir sjer hvort tvö eintök geti samt verið heppileg m.t.t. hagsmuna laumupúka].
En hvað þetta er frumlegt. Ég minnist þess alls ekki að hingað hafi verið sett inn innihalds- og titillaust félagsrit.
[Ranghvolfir augunum]
Ég ítreka... HAGAÐU ÞÉR EF ÞÚ ÆTLAR AÐ HAFA ANDLIT ELLU F. SEM ÞITT!!!
[Ofandar í sjúklegu hræðslu- og reiðikasti.]
Þið haldið þó ekki að þetta sé nýliði ?
Hér er augljóslega um að ræða gamlan og þreyttan brandara, þar sem einhver fastagestur bregður sér í gervi gelgju til að æsa upp í múgnum.
-
Ég kann ekki enn að setja inn mynd á Gestapó, hvernig á nýliði að geta það? Eða er ég kannski bara auli?
Það er nú gott þegar félagsrit verður þess valdandi að manni langar til þess að kúra upp í rúmi. Fíla þetta orðlaus.
En þú ert ekki með neitt hár!
<leggst í gólfið grátandi af hlátri.>
<Býður síðan parrukið til láns.>
Mér finnst thetta alveg meiriháttar félaxrit. Betra en morg onnur frá gomlum Gestapóum...
Það er nokkuð til í því. Sem staðreynd get ég tekið nokkur minna rita sem dæmi, þetta toppar mörg þeirra.. með glæsibrag.
Samt heillast ég nú ekki af því.
Þetta ýtir bara undir þá skoðun mína að þeir sem hafa ekki náð 100 innleggja markinu ættu ekki að hafa rétt til að setja inn félagsrit!