Alltof sjaldan verður maður var við ágætis vísur á ensku. Um daginn rakst ég þó á afbragðs bloggsíðu einstaklings sem kýs að koma ekki fram undir nafni en kallar sig "stafræna smokkfiskinn", eða Digital cuttlefish. Sá eða sú yrkir um hitt og þetta, oft um bloggfærslur vísindamannsins PZ Meyer á Pharyngula blogginu. Því miður notast hann ekki við stuðla og höfuðstafi en ég hyggst reyna að bæta úr því með því að senda honum tölvupóst með helstu reglum "alvöru" bragfræði til þess að gera þetta örlítið erfiðara (og þar með skemmtilegra) fyrir hann eða hana.
Um daginn spratt upp mikil umræða um lögleiðingu á hjónabandi samkynhneigðra í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna þar sem íhaldssamir kristlingar duttu í hina svokölluðu rennibrautarrökvillu, eða "slippery slope fallacy" þar sem þeir sögðu að með hjónaböndum samkynhneigðra yrði ekki langt í að menn mættu giftast hundum, köttum, trjám og fleiru í svipuðum dúr. Það varð stafræna smokkfiskinum að yrkisefni:
O Noes! O Noes! They changed the laws!
Now, if you fancy fins or paws
Go on—get married! Just because
The Gays can do it too!
And anything is fair game now,
From wooly sheep to spotted sow
To octopus (I don’t see how,
But hey, it’s up to you)!
While liberals shout and cheer and praise,
I’m waiting for the second phase—
The Queer Agenda, which The Gays
Will force upon the state;
Wherein the law will now endorse
A person’s right to wed a horse—
If you’re opposed, the cops will force
The two of you to mate!
The animals will run the place—
The horses will have won the race—
These are the facts that we must face
And go on with our lives
We had our chance to take a stand
But nothing worked the way we planned;
We’re stuck with pigs for husbands, and
With bitches as our wives.
Ekki er þetta nú eftir mig, eins og fram kemur í félagsritinu. En það væri e.t.v. hægt að stæla þetta á hið ylhýra...
Mér finnst þetta stórmerkilegt hugaarfar.... Aldrei hefur hvarlað að mér að tengja hjónaband samkynhneigðra við giftingu trjáa eða dýra!
Er í lagi með fólkið þarna vestan hafs?
Mér finnst þetta nú ekkert spes. En hugmyndin að giftast dýri er ekkert svo klikkuð.
Mér finnst kaldhæðnin ekki nægilega sterk í þessu, en það vottar þó fyrir henni.
Mér finnst þetta skemmtilegt kvæði. Höfundurinn er samt slakur í bragfræði, kann bara rím og hrynjandi.