— GESTAPÓ —
blóðugt
Heiðursgestur.
Dagbók - 2/12/05
Fimm ára

30.01.01 kl 23:59

Á akkúrat þessari mínútu fyrir fimm árum síðan var ég fá litla drenginn minn í fangið í fyrsta skipti. Aldrei hef ég upplifað neitt dásamlegra.

Hann er og verður alltaf langflottastur! ‹Ljómar upp›

   (18 af 27)  
2/12/05 07:00

Offari

Verður partý?

2/12/05 07:00

Heiðglyrnir

Til hamingju með það kæra blóðugt..Riddarinn á líka einn svona sem er „já alveg magnað" langflottastur líka..!..

2/12/05 07:00

Þarfagreinir

[Gefur blóðugu fimm ára af þessu tilefni]

2/12/05 07:00

Hundslappadrífa í neðra

Jammsl, fjögurra ára stelpan mín sem einmitt er í þessum hóp, óskar ykkur gæfu og gleði:)

2/12/05 07:00

albin

Til hamingju með guttan, hann er lang flottastu. Og á örugglega ekki langt að sækja það.

2/12/05 07:00

Gísli Eiríkur og Helgi

Ég gleðst með þér og skil unaðinn af tiveru hans enn á bátt með að skilja þrautir fæðingarinnar. því þegar ég fékk mín dásamlegu börn þá átti ég erfitt með að standa þarna hjálparlaus meðan móðirinn leið allar þjánigar veraldar til að koma þeim í heiminn. Og syni þínu vil ég óska hamingju með afmælið og að hafa fengið svona fína móður
og bið alla góða vætti að fara vel með ykkur bæði

2/12/05 07:00

Jarmi

Til hamingju með kempuna!

Ég geri ráð fyrir að þú hafir kennt honum að vera góður eins og mamma sín.

Þið eruð töff.

2/12/05 07:00

U K Kekkonen

15 ár, á ég að trúa þessu... jú það eru 15 ár síðan að ég prófaði þetta.

2/12/05 07:00

Furðuvera

Ég skal trúa því, innilega til hamingju með unga manninn!

2/12/05 07:00

Aulinn

Til hamingju með litla krúttið! ... hvað segiru er hann á lausu?

2/12/05 07:00

Skotta

Til hamingju með soninn. Ég fæddist einmitt líka eina mínútu í miðnætti. Það er góður tími.

2/12/05 07:00

blóðugt

Takk fyrir öllsömul! Partíið var í gær Offari og Jarmi, auðvitað er hann góður eins og mamma!

Því miður auli, hann á tvær kærustur.

2/12/05 07:00

Hvæsi

Tvær ? Þetta er alvöru karlmenni heyri ég.
Til hamingju bæði tvö.

2/12/05 07:01

Ísdrottningin

Til hamingju blóðugt og sonur.
-
Jarmi: eins og mamma HANS (ekki sín!)

2/12/05 07:01

Jarmi

Freðna: Krútt segja "mamma sín"! Og þarsem hann er bara fimm ára þá er hann ennþá krútt (þó hann sé töff).
Smelltu þér endilega á hressingarhælið í Hveragerði, þú átt það greinilega skilið.

2/12/05 07:01

Rasspabbi

Til hamingju með litla snúðinn.

2/12/05 07:02

blóðugt

Takk takk!

blóðugt:
  • Fæðing hér: 28/9/05 21:23
  • Síðast á ferli: 4/2/19 14:42
  • Innlegg: 8170
Eðli:
Sverðgyðja. Verndari vopnanna. Herská með eindæmum.
Fræðasvið:
Sverð, notkun þeirra og umhirða.