Veröld fíkils.
Í heimspekinni, helvíti,
hræðilega er þjakandi,
óstjórnlega, ansvíti,
erfitt að halda sér vakandi!
Kannski' ef væri kaffið gott
komið í minn maga,
svefndraugurinn svifi á brott,
mitt sinni stórum lagað.
Kaffið góða, gleðst ég ef
geti' ég bráðum fengið!
Ofgnótt þá af orku hef
og endist vel og lengi!
Skítt með gæðin, en ég var með kaffi á heilanum í morgun sem og aðra morgna og það kom bara svona út úr mér.
[fer að titra og skjálfa og neitar að fara að sofa fyrr en lítri af kaffi hefur verið innbyrtur... sofnar síðan á föstudag]
Heldur betur! Ég er hrædd um að ég væri ekki búin að skrifa heilan sálfræðifyrirlestur um siðfræði í fósturgreiningu ef ég hefði ekki drukkið 8 espressobolla í dag!
Ég man þegar ég drakk kaffi...kannski að maður ætti að byrja á því aftur [Hugsar]
Ok ok !!!! ég held að liðið sé búið að ná þessu núna. blóðugt er í háskólanum að stúdera eitthvað alveg rosalega gáfulegt...