— GESTAPÓ —
feministi
Fastagestur.
Pistlingur - 3/12/09
Bebbi Gúa

Minningarbrot föðurs

Í gamla daga fór miklum sögum af stórsöngvaranum Bebba Gúa. Hann kom fram í félagsheimilum á norðaustanverðu landinu um miðja síðustu öld og söng svo fallega að enginn fór ósnortinn heim af tónleikum hans. Ekki er vitað hvort hann er enn á lífi eða hvar han er niður kominn og eftir því sem næst verður komist er ekki til mynd af Bebba. Hann þótti svo ófríður að hann kom alltaf fram í pappakassa.

   (1 af 29)  
3/12/09 01:01

Huxi

Stórmerkilegt. Ætli það hafi ekki bara verið grammófónn í pappakassanum.

3/12/09 02:01

Regína

Hvað var pappakassinn stór?

3/12/09 04:02

Vladimir Fuckov

Hvernig var vitað að hann væri ljótur ef hann ljet aldrei sjá sig ?

feministi:
  • Fæðing hér: 19/8/03 17:08
  • Síðast á ferli: 30/1/12 00:01
  • Innlegg: 451
Eðli:
Góðlega stjórnsöm og gjörn á að hafa rétt fyrir sér. Jafnréttismál eiga hug hennar allan.
Fræðasvið:
Hefur ágætt vald á því að vita lítið um mikið.
Æviágrip:
Ólst upp við gott atlæti og mátulegt afskipatleysi í fagurri Íslenskri sveit. Fylltist þó fljótt eirðarleysi og fór út í hinn stóra heim.