Virðing óskast. Á sama stað fæst gefins, latur eignimaður, frek börn, tveir kettir, ónýtur leðursófi og óuppvaskað leirtau. Áhugasamir hafi sambandi með einum eða öðrum hætti.
Hvað ertu tilbúin að borga fyrir kílóið af virðingu? Ég á slatta sem ég þarf ekki að nota. Ég ætlaði að bera hana fyrir samborgurum mínum og ýmsum ráðamönnum, en hef nú séð að það skítapakk á það ekki skilið.
Kettirnir eru geldir og eiginmaðurinn líka, krakkarnir eru kassavön,leirtauið mest frá síðustu öld og leðrið var hvorki af svörtu né hvítu nauti. Virðingu borga ég fyrir í sama.
Þetta er það besta tilboð sem ég hef fengið og þú átt alla mína virðingu skuldlausa.
Vesgú.
Ég er til í skipti, þú færð; freka eiginkonu, löt börn, enga ketti en óhreinan þvott.
Nei annars ég þoli ekki ketti, sleppum þessu bara.
Hér er botnlaus virðing, gjörðu svo vel. Af hinu á ég nóg, það er sama og þegið.
þessi forljóti leðursófi er ónýtilegur til uppstöndu. Líklega hefur litli efnafræðingurinn verði að gera tilraunir á því hvernig breyta má leðri í tyggjóklístur. Nema leðrið sé alls ekki af móbrúnu nauti heldur erfðabreyttu lyfjagrasi.
Oss grunar að a.m.k. einn Gestapói gæti haft áhuga á erðabreyttu lyfjagrasi.
Ekki málið.... slæ til ...Hér er nóg til af virðingu sem ég skal gefa þér og það er alltaf hægt að hafa gagn og gaman af geldum köttum og maka.....börnin lala en ok læt mig hafa það, þau geta alltaf vaskaðupp m.m.
Þar sem ég ber enga virðingu fyrir þér, þá er hún að sjálfsögðu ekki til handa þér.