— GESTAPÓ —
feministi
Fastagestur.
Saga - 31/10/07
Hin illu tippi

Félagið Hin illu tippi hefur sent frá sér eftirfarandi viðvörun.

Hin illu tippi, sem eins og kunnugt er stjórna heiminum, vilja koma á framfæri nokkrum athugasemdum, vegna þráláts orðróms um að félagsmenn beri ábyrgð á hinni s.k. kreppu. Þetta er alrangt og orðrómur þessi er runnin undan rifjum hryðjuverkaarms femínistafélagsins, sem gengur undir nafninu Hinar kláru kuntur. Nú fer í hönd grimm valdabarátta og munu Hin illu tippi ekki gefa nein völd eftir. Það er alveg ljóst að það yrði glapræði og myndi steypa okkur öllum í skuldafen og almenna vanlíðan ef Hinar kláru kuntur kæmust til valda. Við viljum því biðja hinn almenna borgara að vera á varðbergi gangvart öllum konum og hugsanlegum yfirgangi þeirra. Þeim sem þurfa ráðgjöf eða aðstoð við að koma upp glerþökum eða endumenntun í þöggunartækni er bent á að hafa sambandi við félagið.

   (4 af 29)  
31/10/07 16:00

blóðugt

Sveiattann!

31/10/07 16:00

krossgata

Hryðjuverkaarmur -> hryðjuverkalög...
[Gerir armbeygjur]

31/10/07 16:01

Andþór

[Fer upp á varðberg]

31/10/07 16:01

Ívar Sívertsen

[Fer mað Andþóri upp á Varðberg og gerir kreppuæfingarnar, bér sér á brjóst og kreppir hnefana og muldrar í sífellu] banka kreppa banka kreppa banka kreppa...

31/10/07 16:01

Jarmi

Hjúkket, typpið mitt er með yfsilon. Svo ég á ekki sök á þessu.

31/10/07 16:01

Þarfagreinir

[Setur viðeigandi lag með Body Count á fóninn]

31/10/07 17:00

Finngálkn

Fröken Feministi! - Þér eruð drasl! - Ég hef orðið þeirrar ólukku aðnótandi að hlusta á feminista romsa útúr sér ruglinu sem á sér sjaldnast hliðstæðu í raunveruleikanum en andskotinn hafi það - þú ert það allra verst gefna drasl sem ég hef nokkurn tíma þurft að lesa vellandi skítinn eftir!
Hafðu það annars gott - í langrifunni á gærunni þinni!

31/10/07 17:00

Golíat

Góð feministi!

31/10/07 17:01

Ívar Sívertsen

a) Nú er bankastjórastétt orðin láglaunastétt þar sem konur eru orðnar bankastjórar.
á) gott að fá kvenlegt innsæi í efstu hæðir bankana.
b) konur eru æðislegar
c) feministar eru hættulegir þar sem þeir eru uppfullir af ranghugmyndum um aðferðir í átt að jafnrétti.
d) feministar eru öfgakenndir á allan hátt, hin illu tippi er eitt dæmið.
ð) feministar mættu alveg skoða aðferðir annarra sem náð hafa virkilegum árangri.
e) Feministi er hins vegar vænsta skinn ef hún lætur vera að þusa um þessi blessuðu hagsmunamál feminista.
é) Feministi á sér líka leynda hlið sem er að bera ákveðinn titil sem ekki verður keppt um aftur í bráð.
f) Jafnrétti handa öllum, ekki bara konum!
g) rakvél handa öllum, ekki bara konum.
h) þjóðfélagið virkar ekki þannig að einhver gangi yfir annan með offorsi en það vilja feministar gera.
i) ofurlaun eru ekki eingöngu í höndum karla, ég minni á hana Ragnhildi sem var hjá FL group.
í) ofurlaunum á að útrýma!
j) feministar, Feministi, karlar, konur, hundar og kettir á Íslandi eru langflest saklaus af kreppunni.
k) kreppan er spákaupmönnum og húsnæðiskerfi Bandaríkjana að kenna.
l) efnahagur Íslands lagast ekki fyrr en við tökum upp evruna og göngum í ESB en fyrst þarf að laga til í efnahagsmálum.
m) það skiptir engu máli hvort menn eru með tippi, píku eða typpi (eins og Jarmi) svo lengi sem fólkið er hæft til þeirra starfa sem það er ráðið til.
n) það þarf að setja sérfræðinga í öll hæstu störfin
o) setjum hagfræðinga í stóla Seðlabankastjóra.
ó) rekum pólitíkusana úr Seðlabankanum
p) stokkum upp pólitíkina!
q) fækkum þingmönnum.
r) fækkum ráðherrum.
s) fækkum nefndum
t) aukum skilvirkni Alþingis
u) veitum ungu fólki meiri möguleika í stjórnarkerfinu
ú) treystum ungu fólki fyrir eigin framtíð
v) gerum unga konu að forsætisráðherra og ungan karl að utanríkisráðherra.
w) hund í stól forseta Alþingis... það verður ekki verra en núna.
x) sláttuvél í stól dómsmálaráðherra, hann er með svipaðar gáfur.
y) fleiri listamenn í stjórnmálin en samt fækkun á þeim sem fyrir eru.
ý) við eigum öll að vera jöfn fyrir hvert öðru
z) það þarf enga feminista til að benda okkur á það
þ) það eru kreddukallar í Sjálfstæðisflokknum og Frjálslyndaflokknum sem eru hræddir við konur.
æ) Hin illu tippi ættu í raun að heita vandræðavölsar.
ö) mér sýnist að ég kunni stafrófið.

31/10/07 17:02

Bölverkur

Að ég sé femínisti gerir mig ekki endilega spenntan fyrir klárum kuntum, það er miklu fremur eðlishvötin.

31/10/07 20:02

Hexia de Trix

Vandræðavölsar. Mér líst vel á það.
Legg þaraðauki til að orðið Karlrembukuntur verði svo tekið upp og notað um öfgasinnaða feminista.

feministi:
  • Fæðing hér: 19/8/03 17:08
  • Síðast á ferli: 30/1/12 00:01
  • Innlegg: 451
Eðli:
Góðlega stjórnsöm og gjörn á að hafa rétt fyrir sér. Jafnréttismál eiga hug hennar allan.
Fræðasvið:
Hefur ágætt vald á því að vita lítið um mikið.
Æviágrip:
Ólst upp við gott atlæti og mátulegt afskipatleysi í fagurri Íslenskri sveit. Fylltist þó fljótt eirðarleysi og fór út í hinn stóra heim.