Ég hafði farið í heimsókn til ömmu og afa. Að þessu sinni var heimsóknin ekki tilefnislaus. Þannig var nefnilega mál með vexti að foreldrar mínir voru staddir uppi á sjúkrahúsi þar sem taka átti úr henni móður minni einhvern aðskotahlut sem var henni til trafala. Hún var nefnilega komin með þetta stærðarinnar æxli á magann sem var farið að hafa áhrif á hreyfigetu hennar. Eftir gistinguna hjá ömmu minni og afa fór ég á sjúkrahúsið og kannaði hvernig aðgerðin varðandi æxlið hefði tekist. Hún gekk fullkomlega, æxlið hafði verið fjarlægt og nú var búið að setja það í glerbox við hliðina á rúminu sem móðir mín fékk að láni. Eftir miklar athuganir og tilraunir á þessu æxli komst ég loks að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða svokallað ungbarn. Þetta ungbarn hafði verið úrskurðað karlkyns og ákveðið var að kalla það Luigi. Super Mario og Michael Jordan II kom líka til greina.
Þetta æxli er illkynja.
Það er tekið sýni. Svo er það ræktað. Heilbrigðar frumur hafa t.d. aðra uppbyggingu í kjarna en sýktar.
Það kemur snemma í ljós hvort svona æxli er góð eða illkynja.
Ef það verður einsog Hvæsi, þá er það góðkynja en ef það verður eitthvað í líkingu við Úlfamanninn, þá er það illkynja.
(Glottir einsog fáráður)
Ég er svo góður.
(Glottir einsog vangefinn gullfiskur og tekur Homerinn)
I am so smart, i am so smart
S.M.R.T
i mean S.M.A.R.T.
Ertu búinn að gefa honum sólgleraugu..
Þú verður að búa til handa honum gestapóaðgang.
já og til hamingju.
óska þeim góðs gengis að jafna sig. Jeg þekkti stúlku sem dó úr illkynja krabba meðan ég var í gagnfræðaskóla. Það var afar erfitt og sársaukafullt fyrir hana og fjölskyldu hennar en þau reyndu að taka því með sem mestu jafnaðargeði.