Mánudagur: Vakna.
Fösturdagur: Sofna.
Laugardagur: Langur.
Sunnudagur: Lengri.
Ég er fastur í svartholi tímans. Hvernig kemst ég út?
[Finnur engin kennileiti í svartholinu, snýst áttavilltur í hringi.]
Eigi vitum vjer hvernig þjer komist út en það er a.m.k. eitthvað bogið við þetta. Það er venjan að laugardagar og sunnudagar sjeu stuttir en eigi langir.
Í minni sveit var föstudagurinn langi langur, aðrir dagar voru styttri. Ef ég man rétt söng Valgeir um tilveru sem líktist gömlu tyggjói. Hugsanlega ert þín tilvera tyggjó og eina leiðin til að bjarga þér er að blanda nýju tyggjói saman við það gamla og tyggja vel.
Hvað ef tyggjóið hefur enga miðju. Bara tvo mislanga enda. Hvernig á þá að tyggja það? Bara með endajöxlunum?