Hugleiðing
Ein merkasta persóna seinni tíma er horfin úr lífi okkar. Hvurjum skyldi hafa dottið í hug að Mikki refur gæti horfið af sjónarsviði þessa lífs. Dýrin í Hálsaskógi dóu með honum. Sérhvert mannsbarn á íslandinu góða hefur hlustað á rebba rökræða við Lilla klifumús og svelgjast á illa fengnum kökum. Hann lifir að vísu á gömlum rispuðum LP plötum, hljóðsnældum í misjöfnu ástandi, geisladiskum og hugum tugþúsunda Íslendinga og mun sennilega seint gleymast. Hans er samt sárt saknað og sorglegt að gangur lífsins skuli ekki einu sinni eira svo stórbrotnum karakterum.
Blessuð sé minning hans og haldist hún hátt á lofti um aldur og æfi.
Salvador hittir naglann á höfuðið. Setningar sem þessi eru ódauðlegar.