Frést hefur að kvenfélag Bláskógabyggðar hyggist gefa út á allra næstu dögum (vonandi fyrir jól) dagatal sem sýnir þekktar bóndakonur úr sveitinni berstrípaðar. Þætti þetta e.t.v. ekki til tíðinda í sjálfu sér nema í ljósi þess að einhverjum myndanna hefur verið lýst fyrir mér sem stórkostlegum listaverkum. Því miður hef ég þó ekki fengið að berja eina þeirra augum enn. Og svo kann að fara að almenningur fái aldrei að sjá þetta magnaða verk. Verður það vont fyrir listalíf í landinu öllu og enn einn ósigurinn fyrir mannsandann. Lesandinn spyr vafalaust hvað valdi þessari ógn við lista- og menningarlíf landsins. Svarið er auðvitað tepruskapur annarra kvenna í félaginu sem vilja ekki bendla sig við þann sora sem til dæmis allsnakin mjaltakona sem fær sér smá slurk úr spena, þykir.
Ég segi hins vegar, lifi listin, lifi kvenfélag Bláskógabyggðar, lifi frjálslyndið og ferfalt húrra fyrir þessum ágætu konum!
Baráttukvæði:
Systur beran sýnið kvið
og sama hvað hver tepra rausar
ei ykkur skylduð veigra við
að vera alltaf buxnalausar!
Mér finnst það besta mál að nakinn líkami flokkist undir list og fái að njóta sín eins og í þessu tilfelli í myndverkum. Á meðan myndin er ekki tekin beina leið upp í það allra heilagasta eins og verið sé að reyna að mynda eggjastokka konunnar.
Mér finnst einhvern veginn að ég hafi heyrt þetta áður.... <Bíður eftir bíómyndinni>
Ég sá aldrei bíómyndina, en efast um að þar hafi verið mikið um spenadrykkju.
Æi, satt segir þú Isak.
Í myndinni sem kom upp í huga mér voru skotskar eða írskar konur sem bjuggu til 12 mánaða dagatal með myndum af sér.
Humm.... en hvaða bíómynd, sem þú sást aldrei, ert þú að tala um?
Aha! Þú hefur bara frétt af henni.
Mér finnst þetta góð hugmynd og frábært framtaka hjá ágætu konum í kvenf. Bláskógarbyggðar....... kannski vegna þess að ég man eftir téðri bíómynd.
Umræðuefnið er gott og ofboðslega feminískt. Hver er boðskapur þinn?
Bláskógabyggð. Þangað kom ég einu sinni á leið til hálendis og þar var ekki neinn skógur.
Bláskógabyggð heitir svo, líklega vegna þess að Bláskógar eru örnefni sem liggur fyrir ofan allar sveitirnar þrjár (Tungur, Laugardal og Þingavallasveit), og því varla hægt að tengja sérstaklega við eina þeirra fremur en aðra.
En hvað varðar dagatalið, þá er það, hef ég heyrt, komið í sölu á bóksölu Bjarna Harðar.
Ég bíð eftir svona listrænu dagatali með myndum af bændum úr Borgarfirði.
Nei, það er engin hætta á því að það komi út, þeir eru ekki í neinu kvenfélagi.
En bændur geta líka verið konur, hef ég heyrt. Svo er alldrei að vita hvað þeir gera þarna í Borgarfirðinum þeir eru svo líegladir.
ég veit alveg hvaða bíómynd þú ert að meina Grýta.. en ég man engan vegin hvað hún heitir, en hún var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las pistilinn.. annars finnst mér þetta bara flott hjá kvenfélagi Bláskógabyggðar og er allveg sammála Bleika..
Ég legg til að bláir verði fyrstir til að gera svona dagatal á Gestapó.
Þá höldum við áfram að vera frægastir og vinsælastir.
<Háttar súg>
Já Fallegust, ég átti auðvitað að segja bændakörlum ... bóndamönnum ... [Bíður spennt eftir dagatalinu með bláberum póum.]
Bíómyndin heitir Calendar Girls, svona svo það sé frá.
Annars er þetta hið þarfasta rit. Að bera sig á smekklegum ljósmyndum eru sjálfsögð mannréttindi!
Sammála Þarfagreini. Brýnt að menn fái að bera sig þar sem þeir vilja.......