— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Isak Dinesen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur.
Sálmur - 4/12/06
Blæti

Blæti er skemmtilegt umræðuefni

Í þingmenn kvenkyns kappinn helst vill kvöld öll síma
anda djúpt og dirty ríma

Ljótan hund og loðinn klæði í Laiku gallann
og syng svo þvínæst nakinn Nallann

Kitla sporð, með keytu uggann kátur væti
þannig er mitt þorskablæti

Þegar klappar falslaus fögur fraukan kisu
baða ég mig upp úr mysu

Við vegarkant sem vindur smjörið vel ég strokka
á meðan feitir framhjá skokka

---

Þetta allir eiga að sjá að ekki er galið
en mun nú vera velflest talið

   (8 af 42)  
4/12/06 03:01

Billi bilaði

Örvablæti er mér núna efst í kolli.
Líf mitt ber nú lit af solli.

4/12/06 03:01

krossgata

Það sýnir mikið hugrekki að opna sig svona, ég vona að Sif sé samt ekkert í nöp við þig.
[Glottir]

4/12/06 03:02

Jóakim Aðalönd

Skál!

4/12/06 03:02

krumpa

ÚFFF. Hrikalega finnst mér samt BLÆTI ljótt, ógegnsætt og asnalegt orð....sko.

4/12/06 04:01

Z. Natan Ó. Jónatanz

Þetta líst mér á - mannblætandi lesning.
Fantavel ort um fjölblætileika tilverunnar.

4/12/06 07:01

Stelpið

Ég held að ég sé nú bara með Dinesen-blæti.
*roðnar*

Isak Dinesen:
  • Fæðing hér: 15/3/05 17:21
  • Síðast á ferli: 9/6/14 14:10
  • Innlegg: 1593
Eðli:
(Það skal árétt að þetta er athvarf Isaks Dinesens hins íslenska.)

Heldur að hann viti að hann viti ekkert.

Lærisveinn Þorgríms Þráinssonar.

Uppáhalds tónlistarmenn: Sara Vohan og Dissy Gelle-Spy.
Fræðasvið:
Lesblinda og einkirningasótt.
Æviágrip:
Lifir eins og hann mun deyja - stífur.