Ég var í tíma. Kennarinn var að tala um eitthvað leiðinlegt as usual og ég lét mig dreyma á meðan. Ekki í fyrsta skiptið. Í stað þess að skrifa hjá mér það sem kennarinn var að segja, skrifaði ég Isak er dúlla, Isak döðla, Isak rúsína. Kennarinn leit reiður á mig og hreytti út úr sér: Isak, er ég ekki búinn að segja þér hundrað sinnum að þú verður að fylgjast með, viljirðu verða lögfræðingur eins og hann faðir þinn?!
- Haltu kjafti var tilsvar mitt. Þið eigið öll eftir að öfunda mig þegar fæ fyrirsætudjobbið í Hagkaupslistanum og þið hengið myndina af mér á aðskornu nærbuxunum upp á ísskápinn og segið stolt, Ég þekkti hann, hann sat fyrirlestra í lögum Evrópusambandsins með mér upp í Háskólanum.
Kennarinn hélt þá langan fyrirlestur um að ég yrði aldrei annað en djöfulsins drulluhali og aumingi og útlitið myndi svíkja mig á endanum. Eins og það hefði svikið Lindu Pé, Mækal Jakkson og Halldór Ásgríms. Sjálfur rauk ég út í fússi.
En hann hafði rétt fyrir sér. Nokkrum mánuðum seinna sprakk ljósapera í andltitið á mér við tökur. Nú vill bændablaðið ekki einu sinni birta myndir af mér í auglýsingu um nýja mjaltavél.
Ég hefði átt að hlusta á Sigurð Líndal þarna á sínum tíma. Lukkan er hverful...
Bráðskemmtileg saga, Isak.
Uxakerran var líka álitlegur valkostur í því samhengi sem Offari nefnir...
Bændablaðið kann ekki gott að meta.
Lúðar og lummur upp til hópa þessir bændur sem hafa ekki hundsvit á tísku og glæsileika!
Ertu drukkin Ugla?
Við bændur erum rjómi þessa þjóðfélags, á meðan þið malbiksbörnin eruð ekki annað en staðin undanrenna.
Enginn með vott af réttu ráði ætti nokkurn tímann að hlusta á Sigga Lín - hvað þá að vilja vera lögfræðingur!! Það er ekki þess virði. Eru ekki einhver horrormyndablöð sem vilja ráða þig? Vantar ekki líka nýjan ,,ljótakall" í einhverjar myndasögur? Gangi þér vel og vertu feginn að þú hlustaðir ekki - það hefðu fleiri betur gert!