— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Isak Dinesen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur.
Saga - 2/12/05
Bréf til jólasveinsins

Kæri jólasveinn.

Takk æðislega mikið fyrir að gefa mér það sem ég óskaði mér mest í öllum heiminum. Ef ég vinn líka næst þá lofa ég að standa við minn hluta af samningnum - fleiri og breiðari reykháfa á húsin og hreinni skó í gluggana. Þá skal ég reyna að sannfæra hann Sigga um að þú hafir ekkert verið að kyssa mömmu hans.

Ég vona að þú verðir ekki reiður yfir að ég skyldi hafa sagt að þú værir örugglega ekkert til þarna á laugardagskvöldið. En þá hafði ég drukkið allavega tvö glös af freyðivíni og einn pilsner.

Þú ert bestastur í heimi!

Þinn, Dagur.

P.s. Fyrirgefðu að ég skyldi toga í skeggið þitt á jólaballinu, ég var bara viss um að þetta væri Stebbi í grímubúning. Hann er alltaf að gera grín að því að ég skuli trúa á þig.

   (22 af 42)  
2/12/05 13:02

Offari

Er góður dagur fyrir eitt dagsverk í dag?

2/12/05 13:02

Þarfagreinir

Góður dagur fyrir bréfaskriftir alla veganna.

2/12/05 13:02

Jóakim Aðalönd

Nei, nú er Isak endanlega búinn að missa vitið! Isak minn, ég skal lána þér viðurstyggilegu fúkalyfin mín svo þú hættir þessum ofskynjunum.

2/12/05 14:00

blóðugt

Hvaða, hvaða.

2/12/05 14:01

krumpa

Schnilld - ég trúi líka á Jóla.

2/12/05 15:00

dordingull

Þú ert þó ekki að gefa það í skyn að þú hafir unnið í happdrætti?
Og hvar er þá okkar hlutur?

2/12/05 15:02

Rasspabbi

Ég á nær ónotaða spennitreyju hérna inni í skáp. Aðeins notuð einu sinni á miðaldra húsmóður sem fékk nóg af auglýsingum um undraefni til heimilisþrifa.

Isak Dinesen:
  • Fæðing hér: 15/3/05 17:21
  • Síðast á ferli: 9/6/14 14:10
  • Innlegg: 1593
Eðli:
(Það skal árétt að þetta er athvarf Isaks Dinesens hins íslenska.)

Heldur að hann viti að hann viti ekkert.

Lærisveinn Þorgríms Þráinssonar.

Uppáhalds tónlistarmenn: Sara Vohan og Dissy Gelle-Spy.
Fræðasvið:
Lesblinda og einkirningasótt.
Æviágrip:
Lifir eins og hann mun deyja - stífur.