Isak endurbirtir hér skopmynd af spámanninum Ólafi Ragnari Grímssyni
Samkvæmt mínum heimildum hefur Ólafur Ragnar Grímsson nú spáð íslenska skyrinu góðu gengi erlendis innan tíðar. Eðlilegt er að taka mark á þessu í ljósi þess hve gríðarlega sannspár maðurinn hefur verið hingað til.
En hversu sannspár er Ólafur?
* Innganga Íslands í Sovétríkin fyrir 1988 /RANGT
* Að hann myndi hafa Dabba í sjómann /RÉTT
* Að Dorrit myndi falla fyrir sveitamennskunni /RÉTT
* Að hann væri trúlaus /RANGT
Samkvæmt þessu vísindalega yfirliti er Ólafur Ragnar 50% sannspár. Spennandi verður að sjá hvort hann hafi rétt fyrir sér núna.
Hann kallar sig B Ewing hér og hefur alltaf reynst okkur framsóknaramönnum sannspár.