Í tilefni Ásláks
Bara rétt að minna ykkur á að ég Texi Everto, ætla að sjálfsögðu að mæta sallafínn á árshátíðina. Enda er hún haldin á ekta sveitakrá.
Gaman væri ef þeir sem ætla að mæta tjái sig um það hér að neðan, en þeir sem ekki mæta bíði til kvölds að fylla allt með athugasemdum.
Koma svo íííhaaaa....
Pissustopp
Ég kem að sjálfsögðu með langferðabíl. En þú?
Það var ekki tekin sú áhætta að langferðarútan myndi bila ef ég kæmi í hana, þannig að ég verð bara að ganga á staðinn. Hins vegar, Ég held ég gangi ekki heim.
Ég mæti! Ég skelli mér bara með í langferðabílinn, þó að kústurinn hefði eflaust verið fljótari í förum. Það er líka svo mikill loftkuldi svona í nóvember, og þunnar spariflíkur veita lítið skjól.
Vjer komum en lítum svo á að það verði með skammferðabíl en eigi langferðabíl þar eð vegalengdir innan höfðuborgarsvæðisins geta eigi talist sjerlega miklar.
Mosfellsbær er ekki innan höfuðborgarsvæðisins. Hann er milli höfuðborgarsvæða (Reykjavíkur og Grundarhverfis).
Mosó er þarna fyrir norðaustan Grafarvog...
En, jú, ég kem inn í farartækið á sama stað og
Kalli Jóns
og Gústi læknisins
og Nonni Sæmundar
og Palli rakarans
og Fúsi Sigurleifs
og Palli á Goðanum
og Denni í Efstabæ
en hvað með þig?
Ég kem. Ég kem með hópferðabílnum. Ég er mjög stressuð þar sem það lítur út fyrir að farið sé til staðar sem ekki er til og það jafnvel frá stöðum sem ekki eru til.
Ég kem. Væntanlega með vagni er ferðast um stræti og torg. Kýs að kalla hann strætó þó hann sé ekki gulur.
Tina, nú telst Kjalarnesið til Reykjavíkur. S.br. 116 Reykjavík. Því tel ég Mosó vera á milli Reykjavíkur og Reykjavíkur.
Ég kem ekki. Tek ekki áhættuna, ég verð að vera allsgáður á morgun. Ég þarf að prjóna á mig vetrartrefilinn.
Ég legg mjög fljótlega af stað, enda erum við sveitamennirnir skyldir útundan hvað rútuferðir varðar.
Ég kem kannski seinna því blessuð rútan var voða mikið að flýta sér...
Er að redda mér fari og það gæti tekið tíma...
Heyrðu félagi... þetta er engin afsökun... ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu og búinn að plana stuð á Árshátíð og reiðubúinn að borga þúsund kall í rútu... þá geturðu örugglega reddað þér þúsund kall í viðbót og skellt þér á Árshátíðina... drífa sig, þú sérð ekki eftir því... Skál...
Já, greiddu þúsundkallinn og fáðu svo tvöþúsund kall til baka. Það ætti að dekka þetta.
Það var hringt í mig af árshátíðinni uppúr ellefu sá sem hringdi sagði að það væri gaman en mér heyrðist að öllum leiddist.
Takk fyrir kvöldið öllsömul, það var alveg einstaklega gaman að sjá ykkur. [Ljómar upp]
Djöfulli var gaman. Það var svo gaman að ég man ekkert hvað ég gerði þegar ég kom heim. Eða í rútunni á leiðinni heim. Eða hálftímann fyrir það.
Gerði ég nokkuð alvarlegt af mér?
Hvernig gekk, Grágrímur, að fá leigubílinn greiddan (umfram fyrsta þúsundkallinn)?
Vel, þarfi og Billi eru svo miklir heiðursmenn að ég borgaði ekkert. Sem mér fannst mjög rausnarlegt.
Það hefur nú bara verið af því að þeir rukkuðu mig svo oft. Ég á bara engar baunir eftir.