— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Texi Everto
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Sálmur - 1/12/06
Buff

...lesist með amrískum hreim...

Lord mínn, plís mér hjálpaðu, og ljáðu mér nú eyra,
Lord minn, viltu kúreka nauðstöddum í heyra
þér finnst það kannski brjálaðasta bænin hér á jörð
en blessaðu nú Lord minn góður mína kúahjörð.

Eitt sinn varstu í gamni nefndur góði hirðirinn
græðarinn og líknarinn og mesti frelsarinn
æ hentu Lord minn eldingum í alla kollana
sem ætla að fella niður góðu verndartollana.

Lord, ef þú vilt uppfylla mér aðra stóra bæn
aldrei framar skal ég syndga og kjósa Vinstri græn:
þú sem vaktir Lazarus og labbaðir um sæ
æ láttu Hallbjörn byrja á ný með Útvarp Kántríbæ.

   (35 af 52)  
1/12/06 11:01

Billi bilaði

Bravó!

1/12/06 11:01

Vladimir Fuckov

Stórskemmtilegt, Texi er eflaust hreykinn af þessu. Kæmi oss eigi á óvart að hann ætti eftir hrósa sjálfum sjer fyrir kveðskapinn.

1/12/06 11:01

Tigra

Þetta er stórglæsilegt!
Já, vonum að Hallbjörn reddi sínum málum.

1/12/06 11:01

Texi Everto

Ég hreinlega græt þetta er svo fallegt!
[Snýtir sér hressilega í vasaklút]
Ég vissi ekki að ég hefði þetta í mér.

1/12/06 11:01

Lopi

Snilld Texi! Snilld!

1/12/06 11:01

Offari

Glæsilegt. Minnir mig á að ég þarf að uppfæra hjá mér gamalt ljóð.

1/12/06 11:01

Nornin

Frábært Texi... einhver hluti af þér er augljóslega hagmæltur!

1/12/06 11:01

Dýrmundur Dungal

Frábær texti!

Legg til að nafn Texa verði breytt í Texti

1/12/06 11:02

Útvarpsstjóri

ÍHA!!

1/12/06 12:02

Texi Everto

Ég hlýt að hafa verið fullur þegar ég orti þetta snilldarverk. Ég man ekkert eftir þessu.

1/12/06 13:00

Carrie

Þetta fannst mér skemmtilegur texti.

Texi Everto:
  • Fæðing hér: 15/2/05 14:32
  • Síðast á ferli: 16/1/24 09:04
  • Innlegg: 4600
Eðli:
Sæl og blessuð öllsömul, gaman að sjá ykkur.
Á ég ekki fínan hatt? - Nei annars, þessi rönd er ekkert flott! Enda var hann bara kauptaður á Kanarí hérna um árið - svona til að ganga í augun á stelpunum. Enginn les þetta. Jú, víst, ég les þetta reglulega. Ein sagði að ég minnti hana á Burt Reynolds og ég var bara ánægður með það, hann var flottur í Canonball Run.
Fræðasvið:
Brennimerkingar, uppdráttur og laumupúkun (vinsamlegast ekki segja neinum frá þessu með laumupúkunina) Og ég er ekki kallaður Taxi í frístundum! Og öll apaskottin í laumupúkaleiknum eru í mafíunni nema einn, Þessi nýjasti var bara vannabí en svo fékk hann að vera með! En ég keyrði einu sinni taxa til skamms tíma. Svo stoppaði löggan mig og þá var gamanið búið. Ég sat svo einu sinni inni til skamms tíma.
Æviágrip:
Fæddur, flengdur og brennimerktur í Texas árið 1893. Brosi krónískt eins og álfur og átti því erfitt uppdráttar í Texó. Eftir að ég flutti til Íslands hef ég hinsvegar átt afar auðvelt uppdráttar - held það sé hatturinn og álfatrúin en röndin er til trafala!
Laumupúkaþráður settur 6. mars 2008!
Fyrstur tekur til máls; Texi Everto:
Komið hjartanlega sæl og blessuð á þennan sérdeilis ósanngjarna laumupúkaþráð.
Næsti mælandi á skrá er ... Texi Everto.
[Texi Everto: 23.4.2008] Þakka þér Texi, nú ég vil byrja á því að tjá ánægju mína með þennan sérdeilis laumulega laumupúkaþráð - og vil ég hvetja sem flesta til að taka virkan þátt í honum. Að lokum vil ég ljúka máli mínu með þessum lagstúf - Ljómvelskul ljiddali ljeið inn í Ljómabolg, ljændi og ljupplaði ljófum og ljadílum.
[Texi Everto: 4.5.2008]Sæl... eh... systkini? Texar! Það er ekki ofsögum sagt að þetta sé sérdeilis ósanngjarn laumupúkaþráður. En meinlega skemmtilegur er hann. Myndi það kallast meinfyndið? Samt svo augljós og dulinn í senn. Stórkostlegt. Stórfenglegt.
[Texi Everto: 4.5.2008] - Vægast sagt er þetta magnaður laumu þráður. En eðli síns vegna er ekkert víst að hann verði sérlega langur. Það má ætla að svona textabox hafi hámark á stafasjölda, eða þá að í gagnagrunninum rúmist takmarkað magn af stöfum.
[Texi Everto: 4.5.2008 19:28] Það er merkilegt að erkilaumupúki eins og ég skuli ekki hafa fundið þennan laumupúkaþráð fyrr, sérstaklega af því að hann var stofnaður af mér sjálfum (þ.e. mér Texa en ekki mér mér). En þetta er a.m.k. ný og merkileg tegund af laumupúkaþræði <Ljómar upp>.
[Texi Everto: 14.5.2008] Háæruverðugi Texi, Texar og aðrir Texar. Það gleður mig að tilkynna ykkur að ég hef afráðið að brúka nokkur uppátæki. Vinsamlegast látið ykkur ekki bregða við sóðaskapinn. Góðar stundir.
[Texi Everto: 20.05.2008] Ég, Texi Everto, er snillingur og ég mun halda áfram að vera snillingur þangað til ég dey!
[Texi Everto: 24.05.2008] Sammála síðasta ræðumanni! Athyglisverð laumupúkun svo ekki meira sé sagt.
[Texi Everto: 17.09.2008]Í fyrsta sinn sem ég skrifa hér, mjög skemmtilegur laumupúkaþráður...
[Texi Everto: 13.10.2008] Athyglisvert, athyglisvert.
[Texi Everto: 11.11.2008]Ég verð að vera sammála því að þetta er mjög athyglisvert. Og á meðan ég man þá vildi ég bara segja ykkur að ég er bestur.
Þetta er glæsilegasta æviágrip allra tíma og enginn skyldi efast þó að tími skyldi gefast. knús á línuna.
[Texi Everto: 22.12.2008] Ótrúlegt alveg hreint hvað ég er gleyminn! Ég var alveg búinn að gleyma þessum laumupúkaþræði. Eins gott að ég setji eitthvað inn á hann snöggvast svo ég gleymi honum ekki endanlega! Gleðileg jól, allir Texar.
[Texi Everto: 29.01.2009] Í þessum töluðu orðum er ég að laumupúkast, ekkert að því.
[Texi Everto: 01.02.2009] Hvað er ég að rugla? Töluðum orðum? Er ég að tala við sjálfan mig? Eins gott að Blesi heyrði ekki í mér, hann myndi bera mig beinustu leið á ákveðna stofnun!
[Texi Everto: 11.09.2009] Til hamingju með daginn.
[Texi Everto: 27.03.2010] This is.. TEXIIIII!
[Texi Everto: 18.05.2010] Úff bara. Allar þessar útreiðar og engin ljósaskipti? Æ jæja ég fer bara upp á Bakbrotsfell. Þau eru alltaf fallegust þar.
[Texi Everto: 09.02.2011] Ansans ári. Ljósaskiptin eru eitthvað svo dimm á Bakbrotsfelli. Nei, þá held ég að þau Gestapósku séu skárri. Segir maður ekki annars Gestapósku? Eða var það gestapósku? Eða eitthvað allt annað? Úff bara. Ég verð að fara að gera eitthvað í þessum minnismálum.
[Texi Everto: 09.03.2011] Bara af því að það er alþjóðlegi laumupúkadagurinn þá langaði mig að óska sjálfum mér til hamingju með daginn. [Brestur í óstöðvandi grát.]
[Texi Everto: 15.04.2011] Æ, Texi minn, ekki gráta, ég verð svo leiður þegar ég græt. Komdu frekar með mér og lesum allt skemmtilega æðislega dótið!!!
[Texi Everto 20.10.2015] Ég er búinn að gleyma hvort ég var búinn að finna þennan laumupúkaþráð áður [Brestur í óstöðvandi grát]. Man einhver hvort ég var búinn að finna hann áður? [Klórar sér í hattinum].