Það er líklega kominn tími til að ég kynni mig
Ég ætla nú bara að hafa þetta stutt. Það gleður mig að kynnast ykkur, gestapóið er stórkostlegur staður.
Í raun er hann ákaflega sérstakur, jafnvel einstakur, tilefni til hávísindalegrar stúdíu - sem ég geri reyndar ráð fyrir að ritstjórn sé með í fullum gangi.
"Ein merkileg niðurstaða var að ef skúrkum vefsamfélagsins var safnað saman átti sér stað undarleg breyting í hegðunarmynstri þeirra. Eða þá að servíettusöfnun er stig illmennsku sem er með öllu ómeðtakanleg af venjulegu fólki"
Líður ykkur aldrei eins og þið séuð hamstrar í völundarhúsi og einhversstaðar þarna uppi sé maður í hvítum slopp að taka niður punkta. Mér líður oft þannig, sérstaklega í IKEA; "Svo virðist sem eintak #432 eigi í sérstaklegum örðugleikum að komast út úr versluninni, sýnir þó merki um hvata til að sleppa, athugum hvort öskrandi barn hafi örvandi áhrif..."
Jæja, nóg af þjóðarsálarvæli, best að fara að drullast í rúmið, góður dagur á morgun - látið ekki nöldurseggi drepa niður í ykkur allt vit /né vitleysu.
Og meðan ég man, nafnið mitt hefur þýðingu.
Latínuskotið eða ekki latínuskotið, ég var að vona að einhver hér vissi hvaða þýðingu nafnið hefur því það veit ég ekki.
Hafðu engar áhyggjur af þessum njósnum á Gestapó, myndavélarnar eru flestar í eigu Vlads.
Drekkur þú mjólk með kexi, Texi
Hættu þessi pexi, Texi
Áttu exi, Texi
Vert'ekki að þessu rexi, Texi
Ertu kvæntur hexi, Texi
*Vatne hlær brjálæðislega að eigin ósmekklegu fyndni, enda kominn í helgarstuð*
Þakka þér Vladimir, ég hef svo hug á að láta eins og Leoncie í þessu félagsriti...
Svona þegar fram líða stundir
Stundir eru framliðnar - Laumupúkar velkomnir - kaffi og kleinur í boði - "Pabbi þarf að vinna" hljómar á grammófóninum
Skrambinn, ætlar enginn að mæta, bæði rjóminn og Ormlaug eru farin að mygla...
Jæja, ég nenni ekki að bíða hérna lengur, þið getið bara steikt ykkar kleinur sjálf.
Sælir höfðingjar, allir saman. [Nælir sér í heita kleinu] Þetta er alveg prýðilegt hjá þér Skabbi! [Fær sér ískalda mjólk með]
AFHVERJUERUALLIRSVONA
VONDIRVIÐ
HÁSTAFINA?[KLÓRARSÉRÍKOLLINUM]HAFAÞEIRGERTYKKUREITTHVAÐ?[STRUNSARÚTÚRFÉLAGSRITINUMEÐHÁVAÐAOGLÁTUMOGFERÍFYRSTAMAÍKRÖFUGÖNGU MEÐSKILTISEMÁSTENDURVERNDUMHÁSTAFINA]
Nei fjárinn! Ég var fyrst núna að taka eftir því að 26. febrúar 2005 notaði Vladimir bókstaf hins illa. Tvisvar í sömu setningunni! Ætli hann hafi verið veikur þann dag? [Klórar sér í sporanum]
Þetta hefur án efa verið einhvurskonar lævís klækur hjá forsetanum - en hvernig? [Starir þeigjandi út í loftið]
Noh það fer bara að líða að næsta fyrsta maí. [Byrjar að föndra skilti sem lýsa megnri óánægju með reglugerðir um hvíldartíma kúreka]
ÉG Á RAFMÆLI Í DAG,
ÉG Á RAFMÆLI Í DAG,
ÉG Á RAFMÆLI SJÁLFUR,
ÉG ER FIMM ÁRA Í DAG.
Á svona stundu er gott að minnast þess að íslennska kýrrin er bragðbessta kýrr um allt land!