Kæra dagbók...
Ég hef áhyggjur af því að læknirinn sé að missa vitið. Ég var að skoða síðu Dr. Zoidberg nú áðan, sérdeilis skemmtilegur náungi, og rak ég þá augun í nokkuð sem olli mér herfilegu hugarangri. Nefnilega 'y' á þvælingi!
Það væri vægt til orða tekið að segja að heimsmynd mín hafi hrunið, en heimsmynd mín hrundi. Dr. Zoidberg að skrifa 'y' og það á sinni eigin prívat og persónulegu síðu. Ef þið skoðið síðuna hans þá sjáið þið í textanum í æviágripi hans klausuna:
"Á lirfustigi ólst Dr Zoidberg upp í ókunnum drullupolli. Eftir nokkur hamskipti hafði hann þróast í núverandi mynd." - (Dr. Zoidberg)
Mynd, MYND??? Hjálpi mér allir heilagir, þetta hlýtur að vera samsæri.
Jæja kæra dagbók, ég segi þetta nóg í bili, best að grafa upp restina af jólamakkíntossinu til að sefa taugarnar - kannski lagast þetta allt.
http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=31
Þetta hlítur að vera innsláttarvilla eða jafnvel forritunarvilla einhver... *tiggur Opal og sötrar Ákavíti til að róa taugarnar*
Leyfum lækninum að njóta vafans. Hver veit nema þetta sé stafræn mannorðsmorðstilraun óvildarmanns læknisins.
Svo til að bæta gráu ofan á svart byrjar hann félagsrit sitt um Búðardal (nr. 2) á orðinu "Fyrir"!! [brestur í óstöðvandi grát og étur þrá bláa makkíntoss mola samtímis]
Lét tilleiðast & athugaði málið. Mér virðist það eigi munu jafn alvarlegt álitamál & ætla mætti í fyrstu. Æviágripið, sem víað er til, er ritað í 3. persónu, sem bendir til þess að það hafi verið gjört af einhverjum utanaðkomandi aðila, ö ð r u m en Doktornum. Jafnframt er rétt að athuga að því l ý k u r á svohljóðandi yfirlýsingu: "er hættur að rita með uppsilóni". Hafi Zoidberg sjálfur ritað ágripið, er fullkomlega afsakanlegt að y-inu bregði fyrir á ð u r en þessi yfirlýsing er gefin.
Hvað varðar félagsrit nr. 2, um Búðardal, dagsett 20/01/04 - þá ber að hafa í huga að það gæti h u g s a n l e g a hafa verið ritað á undan ofangreindu æviágripi, þarsem hinu síðarnefnda fylgir engin dagsetning, & við vitum því ekki með vissu hvenær sú færsla átti sér stað. Dagsetning skrásetningar Dr. Zoidbergs er reyndar 08/08/03 kl. 11:26, en ég sé ekkert því til fyrirstöðu að æviágripið sé mun nýrra.
Til þess að réttlæta svo alvarlega aðför að vandvirkni & heiðarleika einstaklingsins sem hér um ræðir, þarf því áþreifanlegri sönnunargögn en hér hafa verið lögð fram.
Hriðjuverk, hriðjuverk segi ég! Hverjir hafa aðgang að mans eigins heilögu skrifum. <horfir rannsakandi á alla friðargæsluliða, og rótæka laumupúka> Hver breitti þessu? Ég krefst þess að fá svör.
"stafræn mannorðsmorðstilraun óvildarmanns læknisins" rétt Hakuchi.
Verst að nú er of seint að varpa hinum seka á þrettánabrennu.
[Setur upp sakleysissvip en forðast augnaráð Zoidbergs enda bæði friðargæsluliði og erkilaumupúki]
Mig verkjaði nú bara í augun að lesa þessa orðabelgi. Þvílíkt flóð af stafsetningarvillum hef ég ekki séð í langan tíma (og þá á ég augljóslega ekki við um i/y afstöðu Dr. Zoidbergs).
-
Glottir Gvendur honum stendur
glampar morgunsól
ritast hafa sorgar rendur
reyndar ekk á tól
Amma glanni,
gröð í ranni,
glatt er hennar ból.
Kúa reki,
öldnu spreki,
hamast á sem fól.
Illu sanni,
öldnum manni,
ágyrnist hún tól.
„Þann 6/1/05 klukkan 23:18 mælti Vladimir Fuckov:
Ég held að svona alvarleg mistök geti komið fyrir alla...“
Það sjáum vér, að er greinilegt.
[Glottir eins og fífl.]