sko bara er ég ekki bara á gætis skáld sorri érað monta mig og það á mar audda ekkað gera en ég gériða nú bara samt ha ha
maður vil bara hafa lífið firir ein tómt flipp
samt er stundum altí raskati
en aþví við viljum nottla hafa frið á jörð og sollis
er eijin lega bara best að vera altaf í flipp skapi
Frábær kveðskapur!
E. S. Óviðkomandi þessu "ljóði", þá þarftu að ákveða þig hvort þú sért 25 eða 23 ára. Það er ekki sannfærandi að vera bæði.
Þetta er skemmtileg vísa. Formið er vissulega óvenjulegt, hátturinn óreglulegur og stafsetning framúrstefnuleg. En boðskapurinn er tímalaus gersemi sem á erindi við hvern og einn.
Æi Norna mín. Látum ekki sjá svona stafsetningu frá okkur. Maður fer alveg hjá sjer...
Úff... Sagði jeg Norna?
Fjandakornið jeg verð að fá mjer aftur í glasið!
Sandra. Skammastu nú heim til þín strax!
Ég held við megum passa okkur á að dæma ekki þennan kveðskap út frá uppsöfnuðum pirringi út í hina bleslyndu belgþýsku barnastjörnu sem veður hér um allt á skítugum fermingarskónum. Sæi maður þetta kvæði í öðru samhengi væri það öldungis frábært og ótrúlega mikið dýpra en virðist í fyrstu.
Vitna í hundingjann: Æi Norna mín. Látum ekki sjá svona stafsetningu frá okkur. Maður fer alveg hjá sjer...
Þú ert nú bara heltekinn af mér elskan!!!!
*hlær sig máttlausa*
aldrei að enda málsgrein á semikommu. Og svigi lokast bara ef hann hefur opnast áður.
Mér verður hugsað til Hálendingsins í kirkjunni er sá góði sagði "happy hallowen ladys" . . . það var nú jólanna ígildi mýgildi