Fyrir skemmstu barst þeim, er hér ritar, einkapóstur – þar sem spurt var hve gamall ofanritaður hefði verið þegar hann byrjaði að yrkja. Skeyti þetta var í bundnu máli, & jafnframt fylgdi eindregin áskorun þess efnis að svar skyldi berast í sömu mynt, þ.e. á bragarformi. Afraksturinn getur að líta hér.
Fæddist ég, sem fleiri menn,
fátækur í anda,
& veturgamall vildi senn
vel í lappir standa.
Tvævetur svo tók ég mál;
á toppnum þóttist lifa.
En kjánaleg er krílis sál,
sem kann ekki að skrifa.
Sexvetra ég sitthvað reit,
sitjandi einn heima.
Innihaldið enginn veit;
& ýmsu er bezt að gleyma.
Tívetrungsins töluverð
tómstunda var glíma
að skrá úr hugans skemmtiferð
skrýtin orð, sem ríma.
Fjórtán vetra fæddist mér
ferskeytla í svefni.
Bannað er að birta hér
blautlegt hennar efni.
Langur tími leið & beið;
lítið var um næði.
Átján vetra, útúr neyð,
ástar- reit ég -kvæði.
Tuttuguogtveggja svo
tók ég enn upp penna,
eða kannski eina tvo
– en engu virtist nenna.
Tuttuguogsex & -sjö;
sálin lá í bleyti.
Kannski voru kvæðin tvö,
sem komu um það leyti.
Skáldaferill; skítugur
& skelfilega þunnur.
Þéttrúmlega þrítugur
þrálátt kveður munnur.
Bylur hæst, ef tómar eru tunnur;
jafnvel þó að að þurrausinn
sé þögull kvæðabrunnur ...
Lengi Jóna- lifi -tanz
með ljóðin góðu, tvíræðu.
Stuðlar megi standa hans
þó standi hann á tíræðu.
Einsog þessi ekki margir eru lengur
er kvæði okkur sín hér syngur;
séní, skáld og hagyrðingur.
Það var ekkert minna. All verulega frábærlega æðislegt. Ert þú hin hliðin á peningnum sem við köllum Megas?
Z. Natan Ó. Jónatanz minn kæri...Snilli þín er bara engu lík...Þakka fyrir mig.
Æ í þínum fórum finn
funa í stuðlaglóðum.
Blindfullur er brunnur þinn
af bragarmiði góðum.
Tilveruna talsvert rit þitt bætir.
Tilgerðina finn ég ekki neina.
Tillit þitt oss textaglópa kætir.
Til að þakka býðst hér skáldakleina.
Það er alltaf gott að sjá félagsrit eftir þig, og enn betra að lesa það.
Skál félagi!
Mikið helv... var þetta gott kvæði... Ég ætla að lesa það aftur. [Les aftur... og aftur...]
Enn ítreka ég bónorð mitt, enda komið ár síðan það var síðast borið upp. Hvenær kemur svo ljóðabókin - svo við getum slegið saman brúðkaupi og útgáfupartýi...