Hver var fastur í umferðinni og hver var ekki fastur í umferðinni? Þessi mannfræðilega athugun var gerð á einu þriðjudagssíðdegi í höfuðborg manneldisins og viðburðanna.
,,Ber er hver að baki nema bíl sér eigi''. er kjörorð fólksins í landinu bláa.
En hve margir kunna rauverulega að brúka slíka gripi á öðru en nýmalbikuðum fjórbreiðum hraðbrautum?
Því miður þá eru flestir alveg lens þegar kemur að því að aka um götur þegar snjór þekur fold og sest að í skjólsælum brekkum og húsagötum. Að minnsta kosti á það við um Stór-Reykjavíkursvæðisbúa.
Það fyrst sem þessir flestir klikka á er að bensíngjöfin leysir engan vanda. Í snjó og hálku á að nota bensíngjöf eins lítið og hægt er. Þá spyrja (mig) sumir ,,Hvað á þá að nota''? Svarið er einfalt. Gírkassann.
Til að losna úr skafli á að nota gírkassan.
Til að komast upp hála brekku á að nota gírkassann.
Til að taka af stað án þess að spóla eins og í kappakstri á að nota gírkassan.
Jæja ég veit að það eru til sjálfskiptir bílar en það er líka ástæða fyrir þessum dularfullu tölum 1, 2, 3, og 4 á sjálfskiptingunni (misjafnt úrval eftir tegundum). Þar eru "gírarnir" fyrir sjálfskipinga.
Kannski að utanborgarmarkaBagglýtingar geti miðlað fleiru en þessum fáu atriðum sem ég hef núna nefnt. Fyrirspurnir um betri leiðir milli a-og-b innan borgarinnar í ófærð, reynslusögur, umvandanir og skammir vel þegnar og verður svarað.
Samspil sjálfskiptingar í fyrsta gír og bremsu, til að taka af stað í hálku, á 270 hesta pikköppinum. Annars bara að smella honum í 4wd og nota gasið ekki neitt. Muna svo að setja keðjurnar á ÁÐUR en farið er upp og niður brekku! Einnig er gott að eiga feita tengdarmömmu til að geima á pallinum til að þyngja á afturhásinkunni. Takk.
Ég kann ekki að keyra í snjó. Keyri alltaf of hratt miðað við höfuðborgískar aðstæður þar sem ég lærið að keyra í fannfergi og kafaldsbyl norðan heiða. Hef þó aldrei lent í slysi... veit ekki hvort ég hef valdið einhverjum!
já gott er að nota kúplinguna líka... annar gír og snuð á kúplingunni reddar manni útúr öllum andskotanum... fer reyndar illa með kúplinguna en það er önnur saga...
Er snuðkúplingaraðferðin ekki háð gíhlutfallinu? Ef bíllinn er hátt gíraður þá myndi snuðið festa viðkomandi enn frekar vegna snúningshraða hjólanna og telst þeannig vera all varasöm aðferð?
Annar gírinn er samhvæmt minni reynslu bestur... fer reyndar eftir aðstæðum...
Lykilatriði er að láta ekki spóla, draga kúplinguna rólega upp í lausagangi eða rétt rúmum lausagangi, í fyrsta gír þá fer bíllinn á hreyfingu. Auka svo smá saman bensínið þar til nóg momento er komið til að skipta upp.
Svo er líka hægt að láta bíl helvítið í friði og taka strætó, ellegar leigubíl í vinnuna. Sé fólk á annað borð á rennisléttum sumar hjólbörðum. Látið okkur er erum vel börðuð og kunnum að aka í snjó... Í FRIÐI!