Vegna mikils neikvæðs skortsleysis hef ég ákveðið að taka að mér hagyrðingamót.
Mótið mun ég halda næstkomandi sunnudagskvöld (9. nóvember), klukkan 22:00.
Efni:
1) Kynning
2) Kreppan
3) Sagnfræði; söguleg kvæði
4) Afsökunarbeiðnir; sáttakvæði
5) Leyniefni
Þeir sem ekki láta sjá sig eru jafnhliða margflötungar með fjórum jafnstórum hornum.
Gretzky - það hafa allir móðgað einhvern, einhvern tímann, er það ekki? Það þarf ekki að vera Gestapói sem beðinn er afsökunar, en það er skemmtilegra.
Ég get ekki annað en skorast undan þegar uppskriftin er þessi.
Krepputal kemur mér ekki við enda á ég hrísgrjónabrigðir til tveggja mánaða (þriggja með skömmtun og fjögurra með ýtrustu skömmtun).
Sagnfræði hef ég aldrei skilið og vil ekki blanda mér í slíkt.
Ég er samviskulaus andskoti og biðst aldrei afsökunar á neinu. Sættir eru eitur í mínum beinum.
Leynimakk þoli ég ekki.
Þá er betra að vera þessi trapizíða sem Þarfagreinir talar um.
Að öllu óbreyttu geri ég ráð fyrir að mæta að hluta eða í heild, enda óhemju kringlótt.
Já...kannski maður treysti sér í mætingu ef maður æfir stíft. Er formið frjálst innan rímnahátta eða allt ferskeytlur? [töltir í átt að skjalasafninu og kynnir sér efnið]
En! Hvurninnn er það, hvenær verður fyrsta hagfræðingamót Baggalútíu?
Það sem Wayne sagði - ætlaði einmitt að fara að svara.
Ég fer þó vitaskuld fram á stuðla og höfuðstafi, svo það sé á hreinu.
En nú er margflötungur í þrívídd. Ertu að segja að ég verði teningur sem hefur bara 4 horn? [Hrökklast afturábak og hrasar við]
Nei, B. Ewing, bara fjögur hornanna eru jafn stór...
... hin eru stærri.
Annars ætla ég að vera í playmó á þessum tíma.
Já, ætli maður reyni ekki að mæta...
Ekki vill maður vera ferningur, hvaðþá teningur.
Haha! Hver er núna margflötungur ha? Þarfagreinir! Hver er margflötungur! [Híar á Þarfagreini]
Vonandi er það eitthvað skemmtilegt sem tafði kappann. Og ef það er leiðinlegt, vonandi ekkert verra en botnlangakast.
Ég biðst forláts - ég tók mér verðskuldað tölvufrí í gær, en gleymdi alveg hagyrðingamótinu. [Roðnar]