Ja sei, sei!
Mikið er gott að vera búinn að vinna öll verkin sem manni er upp á lagt að vinna fyrir Jólin. Samfélag mannanna krefst þess að maður sé búinn að <i>öllu </i>fyrir jól. Það eru margir sem eru ekki búnir að <i>öllu </i>enn. Þeir ætla að reyna að klára allt í dag. Flykkjast í bæinn og kaupa. Hlaupa um stjarfir með örvængingarglampa í augunum. Ekki ég. En það má allt eins gera ráð fyrir því að það verði allt rangt að gera í bænum í dag.