Það er margt í mörgu
Einu sinni sungu Stuðmenn um mann sem ætlaði að byggja kúrennudjúskastala og komast þannig í heimsmetabók Gunnars. Svo fréttir maður af þeim í London. Poppið er skemmtilegt.
Minn elsku besti herra Lómagnúpur. Þrjár línur. Hvernig getið þér gert Riddaranum og öðrum hér, sem hafa svo innilega gaman af yðar skrifum þetta. Minnir Riddarann á þegar hann keypti á dögunum einn bláan Ópal, sem væri ekki í frásögur færandi, nema að þegar pakkinn var opnaður voru ekki nema þrjú Ópöl í honum. Þvílík skelfing.
Æ, fyrirgefðu mér ágæti riddari. Það var bara eitthvað svo rýr hjá mér páskahelgin. Ég skal taka mig á í næsta riti.