Jæja þá er ég kominn aftur eftir langa dvöl í Mongólíu. Þar öðlaðist ég nýja trú, ég er orðinn Búddatrúar.
Og þarf því að sverja mig alfarið úr svörtu Kirkju Frelsishetjunar. Ég hef einnig opnað nýja stofnun í Baggalútíu sem er Afvötnunarstofa Dillingers, aðalega vegna þess að mér ofbauð öll þessi "kaffihús" og allur drykkjuskapurinn í Baggalútíu sem var eitt sinn fagurt land og gott að búa í. En þá tók syndin við og allt var á hraðri leið til neðri hluta Baggalútíu.
En það er enn von ég hef lært nýjar aðferðir til að koma fólki undan syndinni, ég get því miður ekki sagt frá því, það er leyndarmál Búddatrúarinnar. Endilega kíkið við á Afvötnunarstofu Dillingers!
Velkominn Dillinger, kíki kannski við hjá þér, en mjög ólíklegt er að ég staldri við lengi...
Skál